Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 58
VIPP
norski hvíldarstóllinn. —
Framleiddur á Islandi með
einkaleyfi. — Þægilegur
hvíldar- og sjónvarpsstóll. —
Mjög hentugur til tækifær-
isgjafa. — Spyrjið um VEPP
stól í næstu húsgagnaverzlun.
— Umboðsmenn um allt
land.
VDPP STÓLL Á HVERT
HEIMILI.
FRAMLEIÐANDI: ÚLFAR GUÐJÓNSSON HF. - AUÐBREKKU 63 - KÓPAVOGI - SIMI 41690
STJÖRNUSPÁ « % # •-
Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprfl): Þú færð fréttir sem eiga eftir að setja svip sinn á athafnir þinar. Haltu þig vel að starfi þínu meðan þú átt að vera að vinna, það borgar sig illa að slá slöku við. & Vogarmerkið (24. september ~ 23. október): Vinkona þín gerir sig seka um ósmekklegheit sem fá þig til að fara hjá þér. Þú kynnist persónu sem þig hefur lengi langað að hafa samband við. Þú endurnýjar samband þitt við gamlan kunningjahóp.
Nautsmerkið (21. aprfl — 21. maí): Kunningjar þínir hafa snjalla hugmynd fram að færa sem þú ættir að íhuga vel. Þér er óhætt að tefla nokkuð djarft í þeim málum sem þú vinnur að. Sennilega ferðu í leikhús. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Góður vinur þinn gerir skyssu sem hann sér mjög eftir. Með orðheppni þinni vinnirðu skemmtilegan sigur. Þú þarft að gera verk sem reynir nokkuð á andlegt þrek þitt.
Tvíburamerkið (22. maf — 21. júnO: Þú færð létt starf í hendur, en vel borgað Þér verð- ur boðið til óvenjulegs mannfagnaðar og skaltu fara, þó ekki sé nema fyrir forvitnina. Taktu til greina leiðbeiningar kunningja þinna. •# Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Taktu ekki hlutina eins og þeir sýnast i fyrstu. Þú átt eftir að gera margar breytingar á teikningum sem þú hefur gert. Kunningi þinn flytur í nágrenn- ið. Heillalitur er blár.
Krabbamerkið (22. júnf — 23. júlQ: Þú ert mjög óviss, því þú átt í rauninni margra • kosta völ. Þú kynnist fólki sem þú síðar meir hef_ ur mikil samskipti við. Vertu ekki of hlédrægur, reyndu að hressa þig upp. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Vegna smá lasleika geturðu ekki sinnt öllu því sem þú hefur á þinni könnu. Unglingur í fjölskyidunni gerir glappaskot sem kemur í þinn hlut að lagfæra. Þú lánar kunningja þínum peninga.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Hugur þinn er óvenju skýr og opinn fyrir áhrifum. í>ú byrjar starf sem á eftir að fleyta þér mjög í átt að settu marki. Þú særir kunningja þinn óviljandi. Þú ferð á dansleik. Vatnsberamerkið £21. janúar — 19. febrúar): Þú verður óvenju rausnarlegur og virðist njóta þess að veita og gera öðrum greiða. Þú færð fréttir sem koma sér vel fyrir þig. Þú heldur þig sem mest að sömu félögunum.
Jk- Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú hefur miklar áhyggjur af gerðum eins ættingja þíns og leggur mikið upp úr að hafa áhrif á hann. Ákveðin persóna ásækir þig alltaf þegar hún kemst í færi við þig. Heillalitur er grænn. 1 Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú getur gert þér mat úr hlutunum, ef þú ert nógu vel á verði. Láttu ekki uppskátt um fyrirætlanir þínar, það eykur á spennuna. Þú kemst á auðveld- an hátt yfir góðan grip.