Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 100
BIBLÍAN — RIT HENNAR I MYNDUM
OG TEXTA er falleg myndabók í alþjóða-
útgáfu. Myndirnar, sem danska listakon-
an Bierte Dietz hefur gert, eru litprentað-
ar i Hollandi, en textinn er prentaður hér-
lendis. Magnús Már Lárusson, háskóla-
rektor, hefur annazt útgáfuna og ritar inn-
gang og ágrip af sögu islenzkra Biblíuþýð-
inga frá upphafi. Þetta er vönduð og
glæsileg myndabók, sem liefur að geyma
nýstárlega túlkun á Heilagri ritningu.
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
POSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
100 VIKAN-JÓLABLAÐ
lagaþáttunum. Við skulum vona, að
þeir fái annað tækifæri til að sýna
hvað í þeim býr, en þá verða þeir
líka að vanda lagavalið betur!
Sú hljómsveit, sem hvað mest
hefur verið í sviðsljósinu að undan-
förnu er Tatarar. Þeir komu fram á
sjónarsviðið svo til óþekktir, og
verður ekki annað sagt en að hin
nýja hljómplata þeirra lofi góðu um
framtíðina. Tatarar standa sannar-
lega í þakkarskuld við útgefanda
plötu sinnar, því að nú er ekki sú
hræða á öllu landinu, sem ekki veit,
hverjir Tatarar eru. Hefur platan
verið auglýst af meiri krafti og
dugnaði en dæmi eru til um að
gerzt hafi áður hér á landi. Von-
andi er, að allt auglýsingaflóðið
verði Töturum til góðs, þegar fram
í sækir, en satt bezt að segja stend-
ur okkur dálítill stuggur af svona
herferð. Sú hætta er yfirvofandi, að
allt bramboltið hafi gagnverkandi
áhrif og líkurnar fyrir því aukast,
ef Tatarar standa ekki í stykkinu.
Það eru auðvitað neytendurnir, sem
hafa síðasta orðið um gæðin, ekki
seljandinn. En þetta segjum við
bara af því að við óskum Töturum
alls hins bezta.
Hér setjum við svo punktinn fyrir
aftan þessa úttekt okkar á íslenzku
popp-hljómsveitunum. Enn mætti
lengi telja og nefna hljómsveitir
eins og Pops, Trix, Mána og Plönt-
una ,sem hafa allar spiarað sig
ágætlega, en ætlunin með þessum
samsetningi var þó einkum sú að
reyna að skýra fyrirbrigðið popp og
geta um þær hljómsveitir, sem mest
hafa látið á sér kræla á því herrans
ári 1969, sem senn er liðið í aldanna
skaut. En reynist eitthvað missagt í
fræðum þessum, þá er auðvitað
skylt að hafa það heldur, sem sann-
ara reynist.
Skin frá
skammdegisnótt
Framhald af bls. 41
forðum sofnaði út frá móður-
bæn með kertin sín í lófanum.
Viljum vér ekki fyrst og
fremst skapa börnum vorum
gleðilega jólahátíð í þess orðs
dýpstu merkingu.
Gætum þess vel þegar vér
göngum til að velja þeim gjafir.
Sennilega hafa fáir menn fært
þjóð sinni á þrengingatímum
dýrmætari gjöf en séra Hall-
grímur Pétursson, þegar hann
lét frá sér fara sálmana um ævi-
lok jólabarnsins, sem vér á þess-
um jólum minnumst 1969 fæð-
ingarártíðar. Sú gjöf mætti enn-
ég mun um síðir njóta þín,
þegar þú, dýrðar drottinn minn,
dómstól í skýjum setur þinn.“
☆
Gamansemi í
íslenzkum ævisögum
Framhald á bls. 23.
Þórðardóttir skáldkona á Vals-
hamri í Geiradal og Jón bóndi
Sigmundsson í Króksfjarðarnesi.
Þau voru bæði við messu hjá
séra Eggert í Staðarhólskirkju.
Þegar meðhjálparinn ætlaði að
fara að lesa útgöngubænina, fann
hana ekki strax og var að blaða
I bókinni. Lítur þá séra Eggert,
þar sem hann var að bæna sig,
út undan klútnum og segir í full-
um rómi: „Vertu ekki að leita
að askotans bæninni," snýr sér
við og mælir fram nokkur bæn-
arorð blaðalaust, en þó ekki hina
vanalegu bæn. Höfðu þau sagt,
að bænin hefði verið með þeim
hjartnæmustu bænum, sem þau
hefðu heyrt“.
„Það var við kirkju, sem ég
man ekki hvar var, að kólfurinn
datt úr annarri klukkunni, svo
að meðhjólparinn gat ekki sam-
hringt. Fer hann til prests og
segir honum frá vandræðum sín-
um. Svarar þá prestur: „Taktu
askotans kirkjulykilinn“. Theo-
dór verzlunarstjóri á Borðeyri,
sagði mér og öðrum fleiri sögu
þessa, og þar með að Eggert
hefði sjálfur sagt föður sínum,
Ólafi prófasti Pálssyni, söguna og
bætt við: „Heldurðu ekki að mér
hafi verið nóg boðið, þar sem ég
var að bæna mig, að heyra í hel-
vítinu, þar sem hann var að
lemja“.“
„Eins og áður er sagt, sagði