Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 4
• Ekki eru ætíð jól.
• Far þú vel, svo fóru jólin.
íslenzkir málshættir.
r
1
Loksins segist hann hafa fundið ástina
sína, og í þetta skiptið er það ekkert
stundarfyrirbrigði. Gunther Sachs, sá 36
ára gamli glaumgosi lýsti nýlega yfir trú-
lofun sinni og sænsku fyrirsætunnar
Mirju Larsson, er þau dvöldu í villu hans
í svissnesku Ölpunum. En Mirja er að-
eins 26 ára, og því fékk faðir hennar, sem
er ráðsettur fasteignasali í Stokkhólmi,
Gunther til að lofa hátíðlega að haga sér
almennilega, svo ekki færi eins um vænt-
anlegt hjónaband þeirra og fór fyrir Gunther títtnefndum og Brigitte
Bardot, sem skildi nýlega við glaumgosann. Sagði Gunther við frétta-
menn við tækifærið:
„Kg lít allt öðrum augum á konur eftir að ég kynntist Mirju,“ og
Mirja sagði að hún væri ekki „ . . . hrædd við fortíð hans. Hún
skiptir mig ekki máli. í honum hef ég fundið eiginmanninn sem
mig hefur alltaf dreymt um.“
Það getur varla hafa farið framhjá nein-
um sem les blöðin, að bandaríski söngv-
arinn, tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið
Bob Dylan er kominn fram á sjónarsvið-
ið aftur, eftir fjögurra ára hlé, en þá háls-
brotnaði hann í umferðarslysi. Nú talar
hann um hljómleikaferð um Ameríku og
í því tilefni veitti hann viðtal við neðan-
jarðarblað í San Francisco, en hann hef-
ur aldrei verið mikið fyrir það að tala
við blaðamenn. Þar sagði hann m. a.:
„Sko, fljótlega eftir að plöturnar mínar fóru að seljast var farið
að spyrja mig hvort ég semdi ekki eitthvað fleira en bara lög. Hvort
ég gæti ekki skrifað bók. Nú, ég sagði jú, og eftir það rigndi yfir
mig samningum frá hinum og þessum bókaforlögum. Ég tók þann
samning sem mér fannst hagstæðastur og skrifaði undir hann. Þar
með varð ég að skrifa bók, ekki satt?.... Jú, auðvitað gæti ég
skrifað bók núna, en það sem ég ætla að gera er að skrifa bókina
fyrst og finna svo útgefandann, ertu með, ha?“
Síðast fór það nefnilega þannig hjá Dylan, að hann skrifaði bók-
ina á nokkrum dögum — vegna þess að hann hafði aldrei hugsað um
hana!
Og enn er komið nýtt (allavega for-) nafn
í kvikmyndaheiminn. Það er Xisa Farrow,
systir Miu þeirrar sem eitt sinn var gift
Frank Sinatra og er nú ólétt eftir músik-
kantinn André Previn. Tisa þykir efnileg,
og persónuleiki hennar engu lélegri en
systurinnar. Hún er aðeins 18 ára og seg-
ir að sig hafi alltaf dreymt um að vera
leikkona. „En,“ bætir hún við, „ef mér
líkar það ekki, þá hætti ég samstundis. Ég
sé ekkert athugavert við það að fara að
vinna aftur í kjötbúðinni á horninu.“ Og það er ábyggilegt að það
væri mun öruggara fyrir hana. Hún leikur aðalhlutverkið í kvik-
myndinni Homer, og óheppnin hefur elt hana á röndum. Rétt eftir
að taka myndarinnar hófst í Toronto í Kanada, varð henni það á að
reka fótinn ofan í híbýli moskurottu og hlaut sár á fótinn í þakk-
lætisskyni. Viku síðar var hún bitinn í fótinn af óðum ketti og mátti
þola 16 ákaflega sársaukafullar hundaæðissprautur 1 mallakútinn.
Og að lokum —• hún lenti á krá ásamt framleiðanda myndarinnar
og þar fór allt í háaloft, slagsmál etc; hún fékk stuð í rifbein, sem
var viðkvæmt fyrir, og brákaðist.
4 VIKAN-JÓLABLAÐ
fréttunum
■Ct
-5
-S
■ct
■Ct
•6
■5
■§
■5
■5
•5
■S
■5
■■S
•5
■c«
■k
■P
■ct
£
■c«
■6
■5
-5
•5
•6
•p
4»
■h
■E
■5
-6
*
-5
-5
■Ct
■5
■Ct
•c*
■6
■Ct
■Ct
■5
■S
■Ct
■Ct
-ct
■Ct
■ct
■Ct
-6
■h
■Ct
■5
■S
■Ct
■ct
■ct
■Ct
■Ct
■Ct
■Ct
■ct
■ct
■cs
■g
•B
■6
■ -S
■5
•Ct
■5
-Ct
■Ct
•S
■Ct
■ct
-Ct
■Ct
■ct
■Ct
•ct
-ct
•ct
•ct
■ct
■ct
F/MM RÚSÍNUR
í JÓLAGRAUTINN
FYRSTA TAUBRÚÐ-
AN ER ENN TIL
Er til nokkur betri jólagjöf
handa lítilli stúlku en brúða?
Þannig hefur þetta verið allt
síðan jólin voru heiðin hátíð.
Ein fyrsta taubrúðan var gef-
in rómverskri telpu fyrir tvö
þúsund árum. Brúðan er nú
varðveitt á British Museum í
London.
AÐ SMAKKA Á
JOLAÖLI
í Danmörku var aðfanga-
dagur jóla lengi talinn fyrsti
dagur ársins, og 24. desem-
ber var því bæði aðfangadag-
ur og nýársdagur. í gamla
daga reið því mest á því, að
menn væru búnir að brugga
sér jólaölið. Jafnvel í hinum
aumustu kofum var það talin
skylda húsráðanda að hafa
ölið sem bezt. Það eimdi lengi
eftir þennan sið í Danmörku
og talshátturinn að hafa
smakkað á jólaölinu þýddi
lengi að vera þéttkenndur.
m
JOLASTJARNA
í BETLEHEM
f borginni Betlehem í Penn-
sylvaniu er nú hægt að sjá
hina björtu jólastjörnu. Það
er rafmagnsstjarna, sem sett
var á fjall skammt frá borg-
inni.
EFTIR ÖLLUM
SÓLARMERKJUM
AÐ DÆMA
Það kannast allir við orð-
takið „Eftir öllum sólarmerkj-
um að dæma“. Talið er lík-
legast, að það sé runnið frá
þeim sið, sem víða tíðkaðist
á Norðurlöndum til forna, að
menn skáru merki í trébálka,
eitt fyrir hvern dag á jólum.
Menn mörkuðu, að veðrið
mundi verða líkt því, sem
það var hvern þessara daga.
Og merkin tólf táknuðu því
hina tólf mánuði ársins.
JÖLAGJAFIR
TIL FORNA
Hér áður fyrr var ekki
minna um jólagjafir en nú á
dögum, að minnsta kosti í
þeim löndum, þar sem ekki
ríkti skortur. í Danmörku var
þessu þannig varið, að þeir
sem mest og stærst gáfu voru
aðalsmenn og íslandskaup-
menn. Til dæmis gaf Erik
Rosenkrands lénsmaður á
Bergenhus eitt sinn 187 mönn-
um jólagjafir og meira að
segja 3—4 gjafir hverjum
einstökum. Kristján konung-
ur IV gaf ráðherrum sínum
á hverjum jólum ósvikna
gullhringi, sem virtir voru á
% mörg þúsund danskar krón-
I Ur'
&
3-
3-
3-
£!■
«•
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-
3-