Vikan


Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 33

Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 33
Kl TIL GEYSIS /IÓTIN Str * K*i.í Strokkur gýs, og erlendir terða- menn horfa liugfangnir á. Teikning eftir J. Blackburn. að fjallahlíðunum, en heimafólk- ið vann við að koma nýslegnu, ilmandi heyinu undir þak. Krist- altærar lindir runnu undan svörtu og grettnu hrauninu og mynduðu straumharða læki, en uppi yfir öllu þessu blikað' tind- ur Eyiafiallaiökuls hátignarlega undir heiðbláma loftsins. A einum stað komum við að fúnu mýrlendi, sem við urðum að fara yfir. Þótt við hefðum oft áður riðið um votlendi, þá höfð- um við aldre' farið um slíkt kviksyndi sem þarna reyndist. Eins langt og augað eygði var ekkert að sjá nema hvítar fífu- breiður og rauðleitar, blaktandi mýrastarir. Hestarnir ieituðust við að þræða vegarslóðina, en sukku hvað eftir annað upp í kvið og þegar þeir fóru að brjót- ast um og reyna að losna úr hin- 4 Við Geysi. Gömul teikning eftir frú J. Blackburn. falssólir eða aukasólir. Klukkan var þá milli átta og hálfníu. Þeg- ar við skyggðum hönd fyrir augu og litum til lofts, sáum við sólina með sína aukasólina á hvora hlið. Þær voru viðlíka stórar og móð- ursólin en með geislabrotsbauga umhverfis, eins og litskrúðugan regnboga og vissi rauði liturinn að sólinni hjá báðum aukasólun- um. Þetta var hrífandi fögur sjón. Við dvöldum þó ekki lengi við þetta, því við áttum langa dagleið framundan — við ætluðum nefnilega að leggja krók á leið okkar og skoða um leið hinn fræga Gullfoss — svo við kvödd- um í skyndi og héldum af stað. Þó að sólin skini í heiði og hefði verið óþægilega heit í öðrum löndum, voru áhrif sólskinsins hér svo fjörgandi, að maður varð sem drukkinn af lífsfiöri. Loftið virt:st ólga af lífskrafti og fjöri og okkur fannst eins og kvika- silfur renna um æðarnar. Vegur- inn var víða mjög torfarinn, um hraun og þýft graslendi þakið þúsundum þúfna, sem minntu helzt á gríðarstóran grafreit með þúsundum leiða. Mér veittist erf- itt að telia mér trú um, að við værum ekki að fremja helgi- sp’öll. Þessir hólar eru algengt einkenni á íslenzku landslagi og mynda oft stórar spildur, með geilum og sprungum, eins til tveggja feta djúpum og viðlíka breiðum. Þessi ,,vegur“ orsakaði ailoft kröftug orðatiltæki hiá þeim samfylgdarmönnum okkar, sem kloflangir voru, því þeir rifu svörðin af þúfnakollunum með fótunum, þegar hestarnir fylgdu skorningunum. Við riðum allan daginn um breytilegt og fagurt landslag fagurgrænt grasið var falleg mótsetning við djúpa skuggana í giljunum, sem skárust inn í fjallahlíðarnar, þar sem hvítt og svart sauðfé starði forvitnislega á ferðamannhópinn. En lengra í burtu hjúfruðu bændabýlin með grænum hallandi túnum sig upp um foruga faðmi fenjanna, sukku þeir dýpra og dýpra í þessa við- bjóðslegu leðju, og það var með mestu hörkubrögðum að þeir náðust upp úr. Það var blátt áfram hræðilegt að sjá, hvernig þessi voðalegu foræði eins og reyndu að soga í sig menn og skepnur. Einn áburðarhesturinn sökk hvað eftir annað og við vorum hrædd við að fara út í ó- færuna honum til hjálpar, því að jarðvegurinn var svo gljúpur og vatnsósa, að hvað lítil þyngdar- aukning sem var, hefði getað sett allt í kaf, hestinn og björgunar- manninn. Vesalings skepnan virtist skilja hin hræðilegu örlög sem biðu hennar, því hún brauzt um í keldunni með ógurlegu hræðsluhneggi, en allt virtist ár- angurslaust, hún sökk æ dýpra og dýrpra í þetta ógurlega ginn- ungagap. Maður varð veikur við að horfa upp á kvalir aumingja skepnunnar og við snerum okkur undan, til að sjá ekki meira. En einmitt þegar allt virtist von- laust og varla sást á neitt nema höfuðið upp úr foraðinu, tókst hestinum með ýtrustu, æðisgeng- inni áreynslu sinni að bylta sér upp að dálítilli grasþúfu, þar sem leiðsögumennirnir gátu náð til hans með mikilli varfærni og að síðustu dregið hann upp úr með lagni og samtakaorku. Klukkutíma síðar komum við að vaðinu á Hvítá og tókst vel að komast yfir um, þótt áin væri svo straumhörð að hestarnir áttu illt með að fóta sig í vatnsflaumn- um. Við sáum Hvítárgljúfrið, með 100 feta standberg á báðar hliðar, þar sem áin rennur svo þröngt, að hvítar öldurnar leika höfrungshlaup í ákafanum að sleppa út úr þrengslunum. Upp yfir efri enda bugðótts gljúfurs- ins ber úðann af Gullfossi, sem er stærsti foss í Evrópu annar en Dettifoss. Fossinn er ákaflega fagur og stórfenglegur. Hvítá kemur allt í einu í ljós framund- an dökkri klettaöxl, nærri fimm hundruð metra breið, í einu lagi, en miókkar niður í þrjú hundr- uð við efri fossinn. Þar steypist vatnið niður í lágt klettarið, sem liggur á ská yfir árfarveginn og fellur n:ður í óteljandi fögrum smáfossum, en sameinast svo aft- ur niður í hyldýpið hundruðum feta neðar. Ofan við fossinn tek- ur við óbyggileg sandauðn þar sem ekkert getur þrifist. Þegar við nálguðumst hvera- svæðið, var til að sjá eins og það skiptist í tvennt og minnti reyk- urinn mann e'nna helzt á járn- brautarlest sem kæmi út úr jarð- göngum. Við komu okkar sáum við að Hannes, hinn ágæti fyrir- liði fylgdarmannanna, hafði sett upp tjöldin rétt hjá Stóra Geysi og fyrsta atriðið, sem beið úr- lausnar okkar var að velia um, hvort við vildum heldur gista í tjöldunum eða í gistihúsinu — Framhald á bls. 59. VIKAN-JÓLABLAÐ 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.