Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 67
r
-7
BADEDAS ER DASAMLEGA HRESSANDI, GER-
IR LÍKAMANN FERSKARI OG HÚÐINA
HEILBRIGÐARI.
BADEDAS INNIHELDUR ENGIN LÚTARSÖLT
OG EYÐIR ÞVÍ EKKI VARNARSÝRU
HÚÐARINNAR.
REYNIÐ BADEDAS í NÆSTA BAÐ.
BAÐEDAS VÍTAMÍNBAÐEFNI
INNIHELDUR 5 VALIN FJÖREFNI SEM
TRYGGJA EÐLILEGA STARFSEMI
HÚÐARINNAR.
BADEDAS ER SÉRSTAKLEGA GOTT
HÁRÞVOTTAEFNI.
UMBOB: B. A. TULINIUS. heildverzlnn |
__ —... __________________—— — --------..—.—.——.—.— —i
en samkliður margra barnaradda
heyrðist utan úr myrkrinu —
það voru herskarar englanna.
Dyrnar opnuðust og Jósef og
María og öll gestaherhersingin
kom inn og var tekið með koss-
um og faðmlögum. Nú skipaði
fólkið sér kringum langborðin,
sem voru kúfuð af allskonar kök-
um, konfekti og allskonar sæt-
indum, en indíánastúlkurnar á
heimilinu báru fram kaffi, vín
og franska líkjöra. Svo kom það,
sem mestan fögnuð vakti hjá
börnunum: pinetan var borin inn
og hengd upp í stærstu stofunni.
Þetta var geysistór hindberja-
rauður fíll með tennur og stór
eyru, og í vömbinni á honum
var leirkrús með allskonar góð-
gæti.
Börnin dönsuðu hringdans
kringum pinata, en fullorðna
fólkið í öðrum hring fyrir utan
þau. Nú var bundið fyrir augun
á litlum strák og honum feng-
inn stafur í hönd, og nú réðst
hann á fílinn. Eftir þrjú fjögur
vindhögg hitti hann og leir-
krukkan brotnaði og allskonar
brjóstsykur, súkkulaði, hnetur,
sykurtengur og allskonar leik-
föng valt út á gólfið. Börnin réð-
ust hamslaus á fenginn, með svo
mikilli háreysti að ekki heyrðust
orðaskil í stofunni.
Þegar þessum látum slotaði,
var skemmtuninni haldið áfram
með söng og dansi, barnaleikj-
um og ýmsu gamni fyrir smáa
og stóra, unz sezt var að borð-
haldi.
En nú urðum við að kveðja
til þess að láta ekki standa á
okkar eigin jólamat, sem beið á
gistihúsinu.
Það leið ekki á löngu þangað
til við — svo var krystþyrni,
mistiltein, jólasveini ameríku-
dömunnar og öðru jólagamni
fyrir að þakka — höfðum gert
vistlega jólastofu úr einu hvít-
kalkaða herberginu okkar.
Þegar kalkúninn var borinn
inn og hlýr gulleitur bjarminn
frá öllum jólakertunum fyllti
stofuna og lýsti upp veizluborð-
ið með öllum krásunum og belg-
miklum Chiantiflöskum, fund-
um við norðurbúarnir fimm, sem
tilviljunin hafði sameinað þarna
undir sól Mexico, að nú vorum
við einmitt komin í jólaskap.
Tíminn líður fljótt, án þess að
við tökum eftir, þangað til
dimmir málmtónar kirkju-
klukknanna í Tlaxcale tilkynna,
að nú sé miðnæturstundin að
nálgast. San Francisco-kirkjan í
Taxcale er elzta kirkjan í Ame-
ríku og þar var gleðiboðskapur
kristninnar fyrst boðaður hinum
nýja heimi. Kirkjan var byggð
úr steini úr gömlu heiðnu
musteri; steinmynd af hrottaleg-
um herguði er múruð inn í und-
irstöðu kirkjunnar, sem tákn sig-
ÞEGAR HÚN VELUR -
ER VARAN FRÁ VAL
VALS
VÖRUR í HVERRI BÚÐ
SULTUR
SAFTIR
ÁVAXTASAFAR
TÖMATSÖSA
Efnagerðin VALIIR
Kársnesbraut 124
—
VIKAN-JÓLABLAÐ 67