Vikan


Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 20

Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 20
KRISTIN HÁTÍÐ í SPENNITREYJU HJÁTRÚAR 20 VIKAN-JÓLABLAÐ Snjónum hlóð niður, líkt og allar gáttir himinsins hefðu opnazt. Mjöllin rauk í sveip- um yfir hvíta akrana unz hún lagðist í mjúk- ar dyngjur við tré og gerði. Gamli bóndinn starði út í þetta hvíta myrkur og ók sér „Hér vígjum við okkar jólabiskup, pró nóbis ...“ órólegur í bragði. Hann renndi augunum uppyfir dymar, jú, þar var stál. Hnífur stóð í þvertrénu og fór titringur um blaðið. Hann strauk hendinni hugsandi um skeggið. Hafði hann munað eftir öllu því nauðsynlega? Höfðu öll verkfærin verið tekin inn af ökr- unum? Hafði áburðarhaugurinn verið stál- aður, og kornloftið? Hafði hann munað eftir að leggja lítið járnstykki í hvert hinna fjög- urra horna jarðar sinnar? Honum leið ekki sérlega vel þarna úti í vetrarkvöldinu, þar sem nornir og allskyns árar léku nú lausum hala. Smávegis gleymska gat haft í för með sér að komandi ár færði bóndanum og fólki hans dauða og uppskerubrest. Stofa bóndans var lítil og lág undir loft, en hún var hlý og þetta kvöld full með bök- unarilm. Hann fann til öryggis, þegar hann kom þangað inn og hafði lokað dyrunum og læst þeim tryggilega. Nú voru híbýli hans örugg fyrir öllum atlögum myrkraaflanna — jólin voru komin. Þessi stórhátíð, sem færði með sér ógrynni matar og drykkjar, leika og fyrirheit um góða daga. Því að nú hækk- aði sólin á ný, og bráðum kæmi betri tíð með blóm í haga. Allt heimilisfólkið var samankomið í stof- unni: vinnumenn og griðkonur, daglauna- mennirnir, smalinn og verkamenn þeir, sem bóndinn þá þegar hafði ráðið til uppskeru- starfanna næsta ár. Öll stóðu þau í hóp í öðrum enda stofunnar, dálítið feimin vegna hátíðastemningarinnar og fínu fatanna, sem þau nú klæddust. Varðhundurinn lá við ofn- inn og leit í kringum sig stórum, áhyggju- fullum augum, eins og hann gæti sízt skilið hvaða erindi hann ætti hingað inn. Húsmóðirin gekk um og bauð fólkinu epla- skífur og sigtibrauð með smjöri, osti og kjöti, ásamt könnu af öli og ef til vill lögg af einhverju sterkara. En mikið var ekki borðað að því sinni; þetta var aðeins forrétt- ur til að lífga lystina. Svo tók húsbóndinn sér sæti við borðs- endann og gætti þess um leið vandlega að velta ekki hinu langa og digra kerti, sem þar logaði á í látúnsstjaka. Svo settist hitt fólkið. Þeir elztu næst húsbóndanum og hin- ir síðan eftir ákveðnu kerfi. Enginn sagði orð eða hreyfði sig um hríð. Síðan fór fram helgiathöfn, sem eins og margt annað í sam- bandi við jólin á þeim tíma var tvímælalaust snöggtum eldri en kristnin í landinu. Hús- bóndinn tók sleifina sína og teygði sig eftir grautarfatinu, sem sett hafði verið á borðið, fyllt prýðilegum, sætum graut úr mjólk og bygggrjónum. Fyrst fékk hann sér skeiðar- fylli fyrir góðri rúguppskeru, síðan fyrir bygguppskerunni og þriðju skeiðina fyrir góðri hafrasprettu. Þar með var jólakvöldið fyrir alvöru geng- ið í garð. Hitt fólkið þreif einnig skeiðar sín- ar og tók að gæða sér á grautnum góða. Úti var makt myrkranna í alveldi, en inni í hvítskúraðri stofunni, sem í tilefni dagsins var ljósum prýdd, ríkti friður og öryggi. BANVÆN AUGU OG BANAKRINGLAN Rétt eins og í dag voru jólin á miðöldun-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.