Vikan - 15.03.1979, Side 26
Undirvagninn má ekki
gleymast, þegar bíllinn
er þveginn
Það er mikilvæg og ödýr ryðvörn að spúla bílinn að neðan.
Óhreinindin safnast undir hjólhllfarnar og þrengja sór inn í hvert
skot í undirvagninum og mynda gróðrarstíu fyrir ryðið.
En flestir bílaeigendur hafa engar áhyggjur af undirvagninum,
þegar bíllinn er þveginn. Þeim er nóg að sjá hreint og gljáandi
yfirborðið.
Sundurryðgaður bíll er ömurleg sjón, og
slíkur bíll er lítils virði í endursölu.
íslenskar aðstasður eru heldur óblíðar
bifreiðum með öllu særokinu og úrkom-
unni, drullunni og slabbinu. Það er því
áreiðanlegt, að greinin, sem hér er þýdd
og endursögð, á erindi til íslenskra bíla-
eigenda.
Ef hægt er að tefja fyrir ryðmyndun,
er um leið verið að lengja ævi bílsins.
Fyrir utan reglubundna meðferð á
rvðvarnarverkstæði, er besta ryðvörnin
að þrífa bílinn vel. En það nægir ekki
að þrifa ytra borðið. Það er ennþá
mikilvægara að þrifa undirvagninn og
þá einkum aftast í innri brettunum.
Besta aðferðin er að spúla með kraft-
mikilli bunu, sem stjórnað er með hand-
afli.
Vélaþvottur er ekki nógu
góður
Margir þvo bílana sína og bóna
sjálfir og telja þá vonandi ekki eftir sér
að þrífa undir þeim líka. En svo eru líka
margir, sem eru því fegnir að losna við
þetta erfiði, að minnsta kosti stundum.
En þeir sem alltaf láta þvottastöðvar
um þrifin á bílunum, eru illa settir.
í Svíþjóð eru sjálfvirkar bílaþvotta-
stöðvar víðs vegar um landið, og á
mörgum þeirra er þvottakerfið þannig,
að bíllinn er spúlaður að neðan. Það
kemur þó að litlu haldi. Sænsku
neytendasamtökin könnuðu þessi mál og
komust að þeirri niðurstöðu, að véla-
þvottur væri ekki nógu góður. Farið var
með mjög óhreina bíla í þvott á slíkum
stöðvum, og í ljós kom, að spúlunin
undir bílinn gerði lítið gagn. Sú niður-
staða virtist ekki koma starfsmönnum
stöðvanna neitt á óvart. Einn þeirra
sagði, að það þýddi ekki að koma með
bíl, sem væri mjög skítugur að neðan, í
sjálfvirkan þvott og halda, að bíllinn
yrði hreinn eftir einn þvott. Skilyrðið
væri, að bíllinn væri fyrst handþveginn
rækilega og síðan vélþveginn oft og
reglulega.
Hér verður mannshöndin að
koma til
Það er reyndar ekki að undra, þótt
erfitt sé að koma við áhrifaríkri undir-
) King Features Syndicate, Inc., 1978. World rights reserved.
© Bulls
26 Vlkan ll.tbl.