Vikan - 15.03.1979, Qupperneq 27
'Þasaar myndir sýna glttggt, að sjáifvirkur v6la-
þvottur dugir illa til afl þrffa bilinn afl nsflan. H6r
sjáum við undir hjólhlffina fyrir þvott...
spúlun, þegar um sjálfvirkan þvott er að
ræða. Bílar eru mjög mismunandi að
stærðum og gerðum, og sé kraftmikilli
spúlun beitt jafnt undir allan bílinn
getur vatnið þrengt sér upp í gegnum
gólfið og safnast undir mottur, þar sem
það síðan getur valdið ryðmyndun, þegar
tímar liða. Eða að vatn getur komist að
rafkerfi vélarinnar, svo að hún vill ekki
fara í gang að þvotti loknum. Af þessu
öllu leiðir, að sjálfvirka undirspúlunin
hefur reynst svo gagnslítil, sem raun ber
vitni, þar sem henni er beitt.
„Bílar eru aldrei þvegnir að
neðan"
Þegar þýðandi hafði lesið umrædda
grein í sænska neytendablaðinu Rád og
Rön, þar sem reyndar er fjallað miklu
meira um sjálfvirkan bílaþvott, sem er
mikið notaður í Svíþjóð, vaknaði
löngun til að kanna aðeins, hvernig
þessum málum er háttað í Reykjavík.
Eftir því sem ég komst næst eru
a.m.k. þrjár nokkuð stórar stöðvar, sem
taka að sér að þvo og bóna bíla. Ein
þeirra er alveg sjálfvirk, en þar er engin
undirspúlun. Hinar tvær þvo bílinn að
utan og innan fyrir mismunandi verð
eftir stærð bílsins, en þegar ég spurði,
hvort bílarnir væru þvegnir að neðan,
komu talsverðar vöflur á þá, sem ég
ræddi við. Þeir skildu raunar alls ekki í
fyrstu, hvað ég átti við, en þegar það
var orðið ljóst, var svarið ákveðið
| neikvætt. Og annar þeirra sagði mjög
ákveðið: „Bílar eru aldrei þvegnir að
neðan.”
Góð regla afl sprauta upp í
brettin
Þegar bíll er ryðvarinn, er hann hins vegar
að sjálfsögðu hreinþveginn utan sem innan,
neðan sem ofan, vélin og vélarhúsið, og
þurrkaður til fulls, áður en hafist er handa
um ryðvörnina. Ég ræddi við starfsmenn á
þremur ryðvarnarverkstæðum, og þeir
gátu sannarlega ekki verið meira sammála
um nauðsyn þess að þrífa bílinn að neðan.
Einn þeirra tók svo djúpt í árinni að segja,
að rækileg þrif undir bílnum á nálfs árs
fresti og spúlun innan á hjólhlífarnar þess á
milli gæti bjargað bílnum frá ryði svona 70-
90%, eins og hann komst að orði.
Bílaryðvöm, Skeifunni 17, var hins vegar
eini staðurinn, þar sem hægt er að fá bílinn
þrifinn að neðan, án þess að um leið eigi að
ryðverja hann. Það er þó ekki alltaf hægt,
því að bílar, sem einnig á að ryðverja, sitja
alltaf fyrir. Sagði viðmælandi minn hjá
Bílaryðvörn, að slík hreingerning kostaði 4-
8000 kr., og þarna væri þetta gjarna gert,
þegar minna væri að gera við ryðvörnina.
Hann lagði áherslu á, að það væri góð regla
að sprauta alltaf upp í brettin og hjóla-
skálarnar, þegar bíllinn væri þveginn.
Erfiðið borgar sig.
Niðurstaðan er því sú, að við getum
gjarna notað okkur þá þjónustu, sem bón-
... og svona lett þessi hluti bilsins út aftir þvott 6
sjélfvirkri stöfl mafl undirspúlun. Spúlunin hafur
alls ekki náfl afl þrifa burt óhreinindin.
og þvottastöðvar veita, hvort sem þær eru
alsjálfvirkar eða ekki, ef við erum bara að
hugsa um ytra borð bílsins, það sem sést.
En undirvagninn verður líka að þrífa með
reglulegu millibili, og það verðum við að sjá
um sjálf. Best er að þrífa bílinn að neðan
með því að spúla hann með kraftmikilli
vatnsbunu, sem beint er að mikilvægustu
stöðunum. Þetta er að vísu dálítið flókið og
leiðinlegt verk, þvi erfitt er að koma
bununni við, þar sem helst þarf, en erfiðið
borgar sig, því það eru miklir peningar í
húfi að takist að tefja fyrir ryðmyndun.
Byggt á grein eftir Bo Dellensten í sænska neytenda-
blaðinu Rád & Rön. K. H. þýddi og bætti við. Birt í
samráði við Neytendasamtökin.
Draumur þoirra, aam láta a6r annt um bfllnn og
16ta sór akki naagja ytri glana: Slanga mafl bognu
munnstykki og kraftmikilli vatnsbunu til þess afl
auflvelda spúlun undir bflinn og þó einkum innan
í hjólhlffamar.
II. tbl. Vlkan 27