Vikan


Vikan - 17.12.1987, Side 30

Vikan - 17.12.1987, Side 30
ÆVAR R. KVARAN PULSPEKl \ Við erum hér á jörðunni og göngum í 'líkamlegri mynd í gegnum ýmis konar reynslu ásamt milljónum annarra. Við faeð- umst inn í þessi skilyrði hjá einhverri þjóð og í sérstaka fjölskyldu. Og að því er við best getum séð, ráðum við engu um það. Við skulum þá fyrst líta á hina sorglegu hlið lífsins, því hún vekur hugsandi manni miklu fleiri efasemdir og vandamál en hin bjartari. Við vitum, að böm feðast í heiminn við ó- líkustu skilyrði. Sum hafa heilbrigða og hrausta líkami, em vel gefin, dugleg, áhuga- söm og fjörug, geta jafhvel með auknum þroska orðið merkilegir hugsuðir. Öðmm er blinda, heymarleysi, sjúkdómar og greind- arleysi £rá upphafi fjötur um fót. Sumir feð- ast í umhverfi, sem býður þeim ást og ör- yggi, hvatningu, menningu og áhuga á fögr- um hlutum; annarra bíður spilling, sóða- skapur og ljótleiki; þeim er að engu sinnt eða jafnvel beitt hryllilegri grimmd af sjálf- um foreldmm sínum. Sumra bíða tækiferin við dymar til þess að bjóða þau velkomin; hjá öðrum ganga tækiferin hjá eða knýja of seint að dymm. Er þetta allt saman hreinni tilviljun undir orpið eða hefur Guð lagt á ráðin um þetta? Sé hvomgt hægt að fallast á, hvaða skýringar eigum við þá að grípa til, sem hefur í sér fólgna sæmilega fullvissu þess, að endanlega ríki réttlætií tilvemnni? Sé Guð réttlátur, góður og kærleiksríkur, þá blasir mikið vandamál við þeim, sem trúir því að sérhver sál sem feðist í heiminn sé ný sköpun Guðs. Það er ekki minnsta vafa undiropið að þær kringumstæður, sem sum- ar sálir feðast í, útiloka rétta þroskamögu- leika í þessu lífi. í sumum tilfellum er líkam- inn vesæll bústaður. Og hvað um hálfvitann og aðra andlega vanskapaða vesalinga? í öðmm tilfellum hlýtur umhverfi, þar sem ríkir ótti, grimmd og mddaskapur að hafa eyðileggjandi áhrif, áður en persónuleiki bamsins getur veitt nokkurt viðnám. Getur trúaður maður ímyndað sér að guð geti að- hafst eitthvað, sem hver einasta sæmilega gerð manneskja mundi gera allt í sínu valdi til þess að hindra? Svar bókstafstrúar Hið venjulega svar bókstafstrúarmanna við þessu er eitthvað á þessa leið: „Vissulega ríkir ójöfhuður, en í ljósi framtíðarástands- ins er hér líka réttlæti. Við verðum að minn- ast þess, að af þeim sem mikið hefur verið gefið, verður einnig mikils krafist. Hinir miklu vitmenn em skyldugir til þess að nota vel gáfur sínar. Þeir sem þjást eða skortir vitsmuni, verður að gera það sem þeir geta, og gera sér ljóst, að Guð er réttlátur og miskunnsamur og gerir því aðeins ráð fýrir afrekum í samræmi við hæfileikana, og að lokum munu allir fá fullt endurgjald þess, sem þeir verðskulda." Hversu sannar sem þessar fullyrðingar 30 VIKAN kunna að vera, þá er hér ekki horfst í augu við spursmálið: Hvers vegna þessi ójöfnuð- ur? Það er vitanlega til augljós leið út úr vandanum — nefnilega að hafha því, að sér- hver sál sé á einhvern dularfullan hátt ný sköpun Guðs. Gemm við það, þurfum við ekki að gera ráð fýrir, að tilviljun eða óheppni sé skýringin á hinum feiknalega ójöfnuði við feðingu. Við getum litið á mál- ið frá sjónarmiði lögmálsins um orsök og af- leiðingu, og sagt, að allur þessi ójöfnuður í aðstæðum við feðingu og bernsku sé afleið- ing fýrri orsaka. En þareð þær orsakir em engan veginn augljósar í þessu lífi, þá leiðir þetta eðlilega af sér, að gera verður ráð fyrir fýrri tilvem sálarinnar. Það er hægt að segja að við séum afkvæmi og afleiðing fortíðar okkar, að núverandi kringumstæður stafi af öflum, sem vakin hafa verið í fýrri tilveru. Lögmál orsaka og afleiðinga Það er reyndar undarlegt, að við hér á Vesturlöndum föllumst skilyrðislaust á lögmál orsaka og afleiðinga á sviði vísinda, en virðumst treg til þess að viðurkenna áhrif þeirra á öðmm mikilvægum sviðum. Og þó er þetta snar þáttur í siðalögmáli allra hinna miklu trúarbragða: „Eins og maðurinn sáir, svo mun hann og uppskera." í austur- lenskri heimspeki er þetta hið mikla karma- lögmál. Hverju sem maðurinn sáir, hvort sem það er á sviði orðs, æðis eða hugsunar, þá mun hann einhvern tíma og einhvers staðar einnig uppskera í samræmi við það. Hér er engan veginn um endurgjald eða refsingu að ræða, heldur einungis óhjá- kvæmilega afleiðingu, sem jafnt á við um Últ og gott. Hinu megum við ekki gleyma, að við erum ekki einangraðar verur. Við erum frá upphafi í vef ýmissa tengsla við aðra, bæði þessa heims og annars, og hugsanir þeirra og athafhir hafa áhrif á gerðir okkar, og við höfum áhrif á þá að sama skapi. Þann- ig uppskerum við að vissu leyti afleiðingar þess, sem aðrir hafa sáð til og við sáum or- sökum sem aðrir uppskera afleiðingar af. En réttlæti, sem er innsta eðli allra hluta - karmalögmálið — sér um að uppskera sé í nákvæmlega réttu hlutfalli við sáningu — og ríkir með þeim hætti í lífi okkar allra. Slíkt sjónarmið er rökrétt og forðar okkur frá þeirri fáránlegu hugmynd, að Guð sýni hlutdrægni með því að veita nýsköpuðum sálum ákaflega mismunandi aðstöðu til þroska. Ef við gerum ráð fyrir því, að maðut sé feddur fáviti sökum athafha í fýrra lífi, þá kann það að sýnast hranaleg skoðun, en við skulum strax gera okkur ljóst, að það er ekki skoðunin, sem er ruddaleg, heldur staðreyndirnar. Vitanlega koma hér einnig erfðir til greina, því neitar enginn. En hins vegar verður að líta á þær ekki eingöngu sem orsök, heldur einnig sem afleiðingu. Þeir, sem trúa á karmalögmálið telja, að það virki að baki erfðanna með þeim hætti, að það beini eða dragi persónu til þess að feð- ast af sérstökum foreldrum við ákveðin skil- yrði. Þá er enn eitt, sem styður líkurnar til þess að sál mannsins hafi átt sér tilveru áður en hún feðist í þennan heim, en það er hinn feiknalegi mismunur andlegra afreka, sem alls staðar blasa við okkur. Það er hyldýpis- gjá milli andlegra kosta og hæfileika bestu manna sem við þekkjum og hinna verstu, milli helga mannsins eða vitringsins annars vegar og hins úrkynjaða úrhraks á hinn bóginn. Þetta bil er svo gífurlegt, að margir líta svo á, að ekki sé hægt að útskýra það, að slíkur seinþroski eða slíkar framfarir geti átt sér stað á venjulegu sjötíu ára æviskeiði. Það má jafnvel líkja slíloi við mismuninn á frumstæðum og þroskuðum lífsformum, eins og þau birtast okkur í náttúrunni. Þetta virðist fremur benda til ólíkra andlegra þróunarstiga, sem átt hafi sér langan aldur. Mismunur meðfæddra hæfileika Sama feiknamismun má finna á sviðum gáfha og listrænna hæfileika. Annars vegar höfum við menn eins og Plato, Einstein, Michael Angelo og Leonard da Vinci, og hins vegar frumstæða villimenn Mið-Afríku og Ástralíu. Það virðist næstum ómögulegt að trúa því, að mismunurinn á þroskuðustu mönnum mannkynsins og þeim óþroskuð- ustu geti hafa skapast á einni ævi nýskap- aðra vera. Það virðist fremur benda til þess, að þessi mismunur stafi af margra alda fram- förum, aga og viðleitni í lífum áður en þetta hófst. Einkennilega ljóst verður þetta, þegar fram koma við og við undrabörn. Þannig höfum við Mozart eða Chopin, sem semja sinfóníur, sýna mikinn tónlistarþroska eða leika afburðavel á hljóðferi komungir að árum, þar sem kennsla og kringumstæður engan veginn nægja til skýringa. Stundum feðast einnig undrabörn með óútskýran- lega hæfileika í stærðfræði án þess að hljóta viðunandi kennslu - smádrengir, sem á óskiljanlegan hátt geta reiknað út hin flókn- ustu dæmi. Við skulum nefna hér til gamans dæmið um Sir William Hamilton, sem byrj- aði að læra hebresku þriggja ára gamall. Um hann sagði einn af kennurum í Trinity Col- lege í Dublin, að hann hefði sjö ára gamall sýnt meiri málakunnáttu en nokkur kennar- anna. Þrettán ára gamall hafði hann aflað sér talsverðar kunnáttu í að minnsta kosti þrettán tungumálum. Meðal þeirra, auk klassísku og nútímamálanna, má nefna pers- nesku, arabisku, sanskrít, hindustan og jafh- vel malaisku. Fjórtán ára gamall skrifaði hann persneska sendiherranum, sem heim- sótti Dublin um þær mundir, bréf og skýrði sendiherrann frá því að hann hafi ekki látið sig dreyma um að nokkur maður á Bretlandi gæti skrifað slíkt bréf á persneskri tungu. Einn ættingi drengsins sagði um hann: „Ég man eftir því, þegar hann var sex ára, þá átti hann það til að svara erfiðri stærð- fræðiþraut og hlaupa svo út til þess að leika sér að hjólbörunum sínum.“ Dr. Brinkley, hinn konunglegi stjörnuffæðingur írlands sagði um piltinn, þegar hann var átján ára: „Ég segi ekki, að þessi ungi maður verði, heldur sé mesti stærðfræðingur, sem nú er uppi.“ Það er ekki hægt að ganga framhjá snilli- gáfu á unga aldri á þeim einum forsendum, að hún sé svo sjaldgæf. Það þarf ekki nema

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.