Vikan


Vikan - 17.12.1987, Qupperneq 34

Vikan - 17.12.1987, Qupperneq 34
Komið til Reykjavíkur aftur um nóttina eftir velheppnaða tónleika í Vestmannaeyjum. „Ég stunda svoidið listaverka- söfhun þessa dagana," segir Bubbi um leið og hann býður mér kaffisopa í eldhúsinu. „Passaðu þig aðeins á því að opna eldhúshurðina ekki upp á gátt. Það er fress að ríða læð- unni minni hérna inni,“ segir hann. Og mikið rétt, á miðju eld- húsgólfinu eru tveir síamskettir í mjög náttúrulegum stelling- um. Ætlunin er að fylgja Bubba eftir í einn dag, eins og skugginn, og greina firá því sem fyrir augu og eyru ber. Morgunmatur Bubba saman- stendur af kaffibolla og jógúrt- dollu, með jarðarberjabragði. Með þessu les hann Moggann. Lætur þess getið að firessið hafi verið að ríða læðunni í alla nótt. Fátt vekur athygli hans í Mogganum utan Rokksiðunnar og greinar Amnesty Internation- al um samviskufanga mánaðar- ins. Við og við lítur hann upp úr blaðinu og kallar til ffesskattar- ins: ,Já dúndraðu henni. Svona dúndraðu henni.“ Mér er tjáð að læðan heitir Appolína. „Við fengum þennan fresskött að láni úr Garðabæ. Það er stúlka þar sem á hann og lánar út til svona hluta. ímyndaðu þér hvað þessi köttur á ljúft líf. Bara éta og liggja fyrir á milli þess sem hann liggur hjá öllum læð- unum í bænum." Hið fyrsta á dagskrá dagsins hjá Bubba þennan dag er törn í líkamsræktinni í Kjörgarði. Við tökum leigubíl þangað og Bubbi biður bílinn að stoppa við sjoppu skammt frá ræktinni. Þar kaupir hann sér Gillett-sköfú. „Hæ, Gústi,“ kallar Bubbi um leið og hann arkar inn í líkams- ræktina. Gústi er kraftalega vax- inn náungi um þrítugt. Hann sit- ur bakvið lítinn skenk í anddyri líkamsræktarinnar og heilsar Bubba. Bubbi fer inn fyrir skenkinn og sér þar brúsa með rakkremi. Tekur hann og spyr: „Má ég ekki fá þetta lánað?" Það er í lagi. Fáir eru mættir að pumpa járn á þessum tíma dags og Bubbi drífúr sig strax í gallan, bláar bómullarskokkbuxur og bleik- an bol. Síðan ræðst hann á lóðin og tækin. Ég nota tækifærið til að smella af nokkrum myndum. Þegar æfingunni lýkur hjá honum er klukkan langt gengin í tólf. Gestum staðarins hefúr fjölgað að mun. Tolli bróðir Bubba lítur inn um leið og við erum að tygja okkur til brottfar- ar. .Ætlarðu ekki að skella þér 34 VIKAN aðeins í ræktina?" spyr Bubbi. „Þykist þú hafa verið hér í langan tíma?“ spyr Tolli á móti. „Ég er búinn að vera hér síð- an rúmlega tíu,“ segir Bubbi rogginn. Tolli spyr mig hvort það sé rétt. Ég kinka kolli. „Það er bara svona," segir Tolli. „Þú hefúr þá byrjað dag- inn með sjálfrennandi hákarla- lýsi og blómaffiæblum sem vaxa upp úr þakrennunni hjá þér.“ Þessar athyglisverðu samræð- ur eru truflaðar af Kidda um- boðsmanni, búlduleitum dökk- hærðum manni með yfirvara- skegg. Hann segir að hann þurfi nauðsynlega að tala nokkur orð við Bubba. „Ég verð að ræða aðeins við þig um tónleika," segir Kiddi. „Hvar?“ „Á Laugarvatni." „Hvað vilja þeir borga?" „Það er ekki frágengið." „Þú veist hvað ég tek fýrir að koma ffiam,“ segir Bubbi um leið og hann smeygir sér í dökk upphá kúrekastígvélin. „Það er kannski hægt að fá meira," segir Kiddi. „Þetta er skóli Kiddi, það er ekki hægt að pumpa þá eins og vínveitingahús. Ég geri þetta.“ Samræðurnar halda áfram um leið og við göngum út úr hús- inu. Fyrir utan kveikir Bubbi sér í Camel-sígarettu. „Djöfúlli var þetta gott,“ segir hann og dæsir. „Maður er „high“ í klukkutíma eftir svona æfingu.“ Kiddi lætur þess getið að Laugarvatn hafi verið að pæla í miðvikudeginum 9. desember. Við röltum niður Hverfisgötuna. „Heyrðu ég get þetta ekki þann níunda. Þá verð ég hjá Hemma Gunn,“ segir Bubbi allt í einu. ,Á- tali?“ spyr ég. Já-“ Hann spyr Kidda hvort hægt sé að flytja þessa tónleika fram til tíunda, en Kiddi segir að það sé ekki hægt. „Hvað með áttunda?" spyr Bubbi. ,JMei þá ertu í Fjölbraut." „Þá verð ég bara að sleppa Hemma. Ég vil spila fyrir krakk- ana.“ „Kannski væri hægt að hafa tónleikana þann sjöunda," segir Kiddi. .Athugaðu það og hafðu svo samband við mig strax," segir Bubbi. Þegar hér er komið sögu erum við búnir að beygja inn á Klapparstíginn. Þar skilja leiðir, Kiddi fer á Billann en við Bubbi á skrifstofú Grammsins sem eru í húsinu beint á móti Billanum. í mat og fleiru á Borginni Bubbi ætlar að hitta Ásmund í Gramminu en hann er ekki við, þegar við komum. Bubbi fær þúsundkall hjá skrifstofústúlk- unni og við höldum niður á Hótel Borg í hádegismat, jóla- hlaðborðið. Á leiðinni niður á Borg fer ég að ræða við Bubba um þann möguleika að hann taki þátt í lyftingamóti milli jóla og nýárs. „Ég geri það ef lappirnar verða í lagi, það er á hreinu," segir hann. Margt er um manninn á Borg- inni en við fáum borð rétt við hlaðborðið. Skömmu eftir að við erum sestir kemur Karl Sighvats, ásamt öðrum manni, að borðinu og spyr Bubba hvort féiagi hans megi ekki ræða að- eins við hann. Það er sjálfsagt mál. Félaginn heitir Guðmund- ur og vill ræða við Bubba um möguleika á tónleikum á Akra- nesi í janúar. Bubbi tekur vel í það. í miðium samræðum þeirra kemur Ámundi Ámundason að hlaðborðinu að velja sér rétti. Bubbi sér hann og segir: „Þú skalt fá þér lifrina Ámi, hún er holl fyrir þig en mér finnst hún óæt.“ Ámundi skóflar vænum skammti af lifúr á diskinn hjá sér og fær sér kartöflumús með. Eftir matinn sér Bubbi eina af þjónustustúlkunum með stóran vindlakassa í fánginu. Hann kall- ar á hana og segir að sig langi í vindil. Skoðar úrvalið og spyr
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.