Vikan - 17.12.1987, Page 36
„Þeir voru alveg
sjúkir," segir Megas
meö sinni skemmti-
legu áherslu á síðasta
oröinu. „Ég var í
latex buxunum
mínum."
„Já ég frétti af því,"
segir Bubbi og hlær.
una. Bubbi staðnæmist við
sjoppuna.
„Helvíti er góð popplykt
hérna,“ segir hann og horfir á
mig. Ég brosi.
,Já er það ekki bara,“ segir
Bubbi glettinn og við förum inn
í sjoppuna þar sem hann biður
um minnstu stærð af popppoka.
í sjoppunni eru þrír ungir strák-
ar sem segja Bubba að þeir
dýrki hann. Einnig stendur þar
við borðið eldri maður, grá-
hærður, þunnhærður, með gler-
augu. Hann snýr sér við með
hálfétna pylsu í annarri hend-
inni og teloir hinni utan um axl-
ir Bubba.
„Nei ert þú ennþá á lífi,“ segir
gamlinginn glaðlega.
,Já en ekki þekki ég þig,“ seg-
ir Bubbi og yfirgefúr staðinn.
Jellý
Er við komum til Þorleifs er
klukkan orðin rúmlega fimm og
brátt tími til kominn að drífa sig
í flugið til Eyja. Þorleifúr er til-
búinn í slaginn en Bubbi þarf
fýrst að koma við í Bræðraborg
til að ræða við meðlimi hljóm-
sveitarinnar sem spila á undir á
tónleikum hans í Óperunni. Við
löbbum eftir Lindargötunni og
þar fer Bubbi að tala um að
hann þurfi einnig að koma við
heima hjá sér til að ná í hárgel
fyrir tónleikana. Þorleifúr gerir
grín að því og ég skrifa þessi
orðaskipti niður.
„Nei Friðrik, ég vil ekkert
jellý, ekki skrifa þetta,“ segir
x hann.
,Jú mér finnst það gott,“ svara
ég-
Þá öskrar Bubbi á miðri göt-
unni: „Nei ég vil ekkert jellý því
ég hef ekki hár í það lengur.“
Að loknum þessum smáerind-
um setjumst við upp í jeppa
Þorleifs og loksins erum við
staddir á leiguflugi Sverris Þór-
oddssonar.
Þar kemur heldur betur babb
í bátinn því flugmaðurinn sem á
að fljúga með okkur reynir að
36 VIKAN
Slakað aðeins á í stofunni heima eftir líkamsræktina.
Meistari Megas og fressið Megas sem greint er frá.
þröngva aukafarþega í vélina
sem Bubbi hefúr tekið á leigu.
Bubbi verður af skiljanlegum
ástæðum bæði sár og reiður yfir
þessu enda er til þess ætlast að
þessi aukafarþegi borgi aðeins
brot af því sem vélin kostar.
Upphefst nokkuð karp út af
þessu milli Bubba og flug-
mannsins, ekki af því að Bubbi
vilji ekki taka manninn með, það
er engin spurning, heldur þess-
arar framkomu flugfélagsins í
hans garð. Síðan er haldið af
stað út í vélina.
Það tekur flugmanninn þrjár
tilraunir að koma hægri hreyfli
vélarinnar í gang en síðan virð-
ist sá vinstri aldrei ætla að taka
við sér. Bubbi sem situr við hlið
flugmannsins spyr glottandi:
„Kemstu til Eyja á öðrum hreyfl-
inum?“
Loks fer vélin í loftið og við
tekur þögult flug til Eyja. Lág-
skýjað er alla leiðina fullt tungl-
ið varpar daufri birtu á skýja-
breiðurnar sem við fljúgum yfir.
Megas og aðrir mættir
Það er enginn sem tekur á
móti okkur þremur er við lend-
um í Eyjum. Byrjað er að rigna
og nokkuð hvasst er á flugveflin-
um. Sá sem fékk farið með okk-
ur ekur á brott í stórum banda-
rískum kagga. Hann býður okk-
ur ekki far.
Við stöndum í ráðaleysi fýrir
framan harðlæsta flugstöðina er
lítill rauður japanskur bíll renn-