Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 41
r m w r- r i
vn n m m |
II II ^ II
íkó setti hún upp sjónvarp og
kallar verkið Fallandi sjónvarp
Hvað er hún að segja með
þessum verkum?
„Þetta er þróun hjá mér. Ég
byrjaði á málverkum af tveim-
ur mannverum f tjáskiptum.
Svo tók ég til við að hafa að-
eins eina mannveru og þá f
tengslum við umhverfið og þá
miðla sem við notum til tjá-
skipta, svo sem sjónvarp,
síma og útvarp. Þessi tæki
umkringja persónuna en per-
sónan er þó einangruð og tjá-
skipti hennar fara einungis
fram í gegnum þessa hluti.
Þetta er staða sem spennandi
er að skoða, nútímamaðurinn
f hnotskurn, kannski?
Einnig málaði ég nokkrar
myndir þar sem innblásturinn
var sóttur f grafreiti egypsku
Hlnn risavaxnl sfmi sem Sonja gaf Hafnarfjarðarbæ.
◄ Myndirnar tvær hér til
hliðar voru teknar á Jóns-
messunótt i Straumi þegar
listamennirnir komu þar
saman ásamt fleirum. Sonja
lét sig ekki muna um að velta
sér nakin upp úr dögginni.
konunganna sem létu grafa
sig með allt sem þeim var kær-
ast í jarðvistinni. Þá raða ég
síma og sjónvarpstækjum í
kringum mannveruna á mynd-
inni.“
Myndhöggvari og málari; er
henni fleira til lista lagt?
„Ég geri skúlptúra úrstáli og
pappír og mála með pastel- og
akrýllitum. Ég nota það sem
mér finnst henta best til að tjá
það sem ég er aö tjá hverju
sinni, þó ég viti að margir yrðu
mér ósammála um hvernig ég
blanda saman efnum. Svo var
ég að byrja að gera myndbönd
og mitt fyrsta verk er í sam-
vinnu við Nýja bíó í Reykjavík,
tilraunamyndband um
myndbönd. Þar nota ég slysa-
effekta, sem fólk vill yfirleitt
losna við, svo sem snjó og rúll-
andi mynd. Mig langar til að
blanda þessu síðan saman við
skúlptúr því þetta verk er
byggt á láréttu línunum í sjón-
varpinu. Blandan er því af el-
ektrónískum línum og skúlp-
túrlfnum. Það er áhugavert
að vinna með hina ýmsu tækni
og reyna að tjá sama hlutinn
með mismunandi aðferðum.
Hvert vandamál skapar nýja
áskorun."
LISTIN ER TUNGUMÁL
Hvert er hlutverk listarinnar 1
þjóðfélaginu?
„Listin er tungumál. Meö
henni tjái ég þaö sem ég er að
hugsa eða jafnvel eitthvaö
ómeðvitað. Annað sem kom
mér ánægjulega á óvart á ís-
landi var að mér fannst ekki
eins mikið snobb f kringum
listsýningar hér og ég er vön
frá Evrópu. Fólk kom um helg-
ar og við gátum rætt við það
og útskýrt verkin. Það var allt í
lagi þó krakkarnir væru að
Frh. á bls. 74
26. TBL. 1991 VIKAN 41