Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 36
TEXTI: HJALTI JÓN SVEINSSON MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
ELÍN VIGDÍS HALL VARDSDOTTIR, FULLTRUILOGREGLUSTJORA
• •
AKVORÐUNUM|
HENNAR EKKI All
TEKEÐ FAGNANDl
Tíðindamanni Vikunnar
hafði af einhverju tilefni bor-
ist til eyrna að einum hinna
fjölmörgu skemmtistaða
borgarinnar hefði verið lok»
að eitt kvöld vegna þess að
útafhonum hefðu verið tald■
ir of margir gestir. Það fylgdi
ekki sögunni hvort skeikað
hefðimiklu frá leyfilegri tölu
en þarna hefðu mæst stálin
stinn, eigandi veitingahúss-
ins annars vegar og fulltrúi
lögreglustjóra hins vegar.
Veitingamaðurinn varð að
hlíta úrskurðinum, sem ekki
var haggað þó svo að mikið
væri í húfi fyrir hann.
Það fylgdi sögunni að
hér hefði ung kona átt í
hlut fyrir hönd lögreglu-
stjóra og þótti það í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi. Signý
Sen lögfræðingur hefur um
margra ára skeið haft vínveit-
ingahúsin á sinni könnu og
eftirlit með þeim og stundum
hefur hennar verið getið í fjöl-
miðlum þegar eitthvað hefur
orkaðtvímælis í þeim efnum. I
þetta skiptið var nafn hennar
ekki nefnt heldur var þess get-
ið að umrædd kona væri til-
tölulega nýlega komin til
starfa. „Þeir héldu að þeir
hefðu í fullu tré við þá stuttu,“
sagði sögumaður, „en í Ijós
kom að henni var ekki að
hagga."
Á tímum mikillar umræðu
um að takmarka skuli aðgang
íslendinga að áfengi annars
vegar og þrýstings frá umbóta-
sinnuðu hófdrykkjufólki hins
vegar um að auðvelda hann
enn frekar, meðal annars með
því að taka áfengisútsöluna úr
höndum ríkisins, er ekki úr
vegi aö skyggnast lítið eitt inn
á skrifstofu fulltrúa lögreglu-
stjórans í Reykjavík. Þar verð-
ur Elín Vigdís Hallvarðsdóttir
fyrir svörum en hún hefur
stundum þurft að setja óþekk-
um veitingahúseigendum stól-
inn fyrir dyrnar á undanförnum
misserum.
STARFIÐ GENGUR EKKI
í ERFÐIR
Hún er kankvís og glaðleg og
brosir við blaðamanni þegaf
henni virðist á svip hans að
hann hafi búist við að hún væri
einhvern veginn öðruvísi.
Skrifstofa hennar er uppi á
annarri hæð í lögreglustöö-
inni, hvorki stór né íburðar-
mikil. Hún vill sem minnst gera
úr þeim þætti starfsins er lýtur
að vínveitingahúsunum. „Ég
sinni honum alveg á sama hátt
og öðrum málum sem mér
berast og ég reyni einfaldlega
að gera mitt besta."
Foreldrar Elínar eru Guðrún
Karlsdóttir og Hallvarður Ein-
varðsson, ríkissaksóknari og
fyrrum yfirmaður Rannsóknar-
lögreglu ríkisins. Aðspurðseg-
ir hún að það hafi ekki verið
vegna áhuga á starfi föður
hennar aö hún ákvað að ger-
ast starfsmaður lögreglu-
embættisins í Reykjavík.
„Þetta erfist ekki en það var
fremur tilviljun sem réð því að
ég fór aö vinna hér. Þegar ég
lauk lögfræðináminu sótti ég
um starf á ýmsum stöðum en
þetta var það eina sem mér
bauðst. Ég gat vel hugsaö mér
að vinna hér í lögreglustöinni
enda líkar mér mjög vel
hérna."
Það eru ekki nema rúm tvö
ár síðan Elín lauk námi og því
eru henni háskólaárin ofarlega
í huga. Hún heldur enn sam-
bandi sínu við marga félaga
sína úr lagadeildinni sem
bundist hafa vináttuböndum á
löngum námsferli. Ofan við
Frh. á næstu opnu
36 VIKAN 26. TBL.1991