Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 58
TEXTI: ÞÓRDÍS LILJA JENSDÓTTIR
Viðtal við Jamie-Lynn Magnússon, vestur-íslenskan doktor
í sálarfræði, við Manitobaháskóla í Winnipeg í Kanada
Það er leikur að læra, seg-
ir í alkunnri vísu. Það er
einnig list að læra. Að
minnsta kosti er það skoðun
Jamie-Lynn Magnússon,
doktors í sálarfræði, sem vinn-
ur við kennslufræðirannsóknir
á háskólastigi við Manitoba-
háskóla ( Winnipeg í Kanada.
Hún þjálfar háskólakennara
með það að markmiði að þeir
geti kennt nemendum sínum
listina að iæra.
„Starf okkar sem vinnum við
kennslurannsóknarstöð Manit-
obaháskóla felst í því að rann-
saka hvernig nemendur til-
einka sér þekkingu og komast
að því hvaða kennsluaðferðir
nýtast nemendum best við
þekkingaröflunina,1' segir
Jamie-Lynn. „Einnig vinnum
við að þróun nýs tölvuhugbún-
aðar sem ætlað er að meta
framfarir nemenda og setjum
upp námskeið þar sem há-
skólakennurum eru kynntar
nýju kennsluaðferðirnar.11
- Hvernig er tölvuhugbún-
aðurinn notaður við mat á
kennslu?
„Notkun tölva sem hjálpar-
tækja við mat á kennslu er
ekki nýjung í sjálfu sér. Nýja
tölvuhugbúnaðinum, sem við
erum að þróa, er hins vegar
ætlað að meta framfarir nem-
enda. Hingað til hefur tíðkast
að miða kennslumatið við
kennarann og fer það þannig
fram að ég fylgist með nokkr-
um kennslustundum viðkom-
andi kennara. Ég skrái hjá mér
meðal annars hvernig honum
tekst að ná til nemenda sinna
og vekja áhuga þeirra á við-
fangsefninu. Síðan færi ég
þessar upplýsingar inn í tölv-
una sem vinnur úr þeim og
prentar út heildarkennslumat.
Ég ræði síðan viö kennarann
og bendi honum á það sem
betur má fara í kennslu hans.
í háskólum hefur nemend-
um einnig verið fengið það
hlutverk aö meta kennarana.
Hverjum nemanda er þá feng-
ið í hendur eyðublað þar sem
hann gefur kennaranum eink-
unn á bilinu 1 til 10 og er þá
tekið mið af ýmsum þáttum
kennslunnar. Tölvan vinnur
síðan úr þessum upplýsingum
á sama hátt og ég lýsti áðan.
Viðkomandi kennari hefur síð-
an aðgang að þessum upplýs-
ingum.“
HÆFUR HUGSUÐUR
- HVAÐ ER ÞAÐ?
„Núna erum við á kennslu-
rannsóknarstöðinni farin að
meta kennsluna út frá nem-
endunum og framförum þeirra
en ekki eiginleikum kennar-
anna,“ segir Jamie-Lynn.
„Rannsóknir okkar beinast aö
því að kanna hvernig háskóla-
nemendur læra og hvernig
hugsun þeirra þroskast, verð-
ur sjálfstæð, skipulögö og
markviss.
Við göngum út frá þeirri
framþróun sem við vitum að
verður í hugsun nemandans
frá því að hann hefur nám og
þar til því lýkur. Doktor í eölis-
fræði hugsar á allt annan hátt
en sá sem er að hefja nám í
greininni. Hlutverk kennarans
er að virkja hugsun nemand-
ans og auka þannig náms-
árangur hans.
Þekkingu má líkja við
pakka. Sú aðferð sem notuð
hefur verið við mat á kennslu
byggist á þvi aö athuga hvort
kennaranum tekst að gera
þekkingarpakkann nógu girni-
legan til þess að nemendur
opni hann og tileinki sér inni-
haldið. Allt snýst um kennar-
ann og hvort hann er skipu-
lagður og líflegur í kennslu-
stundum. Við höfum snúið
dæminu við og spyrjum spurn-
inga eins og: Hvernig lærir
nemandinn? Hverjir eru eigin-
leikar hans? Hvaða eiginleikar
kennarans auðvelda nemand-
anum að hugsa sjálfstætt og
skipulega?
[ stað þess að gefa kennar-
anum einkunn á bilinu frá 1 til
10 er farið að huga í auknum
mæli að þeirri sálfræði sem
liggur á bak við listina að læra.
Farið er að leggja meiri
áherslu á einstakan nemanda
og hvernig hann tileinkar sér
þekkinguna. Þarfir nemand-
ans eru aðalatriðið en ekki eig-
inleikar kennarans. Ef öll orka
kennarans fer í að vera skipu-
lagður og líflegur í kennslu-
stundum er hann um leið ófær
um að hjálpa nemendum sín-
um til þess að verða hæfir
hugsuðir."
- Hvaðerhæfurhugsuður?
„Sá sem getur hugsað á
agaðan og hæfileikaríkan hátt
er fær um margt. Aðan líkti ég
þekkingu við pakka og við
upphaf náms burðast nem-
endur við að kynna sér og
læra einstaka óskipulagða og
ótengda þekkingarpakka.
Þegar á námið líður læra þeir
smám saman að skipuleggja
hugsun sína og sjá hvernig
pakkarnir tengjast. Þá opnast
fyrir þeim nýir heimar, tengslin
á milli einstakra þekkingar-
pakka verða skýrari og hugs-
unin verður um leið skýrari.
Pakkarnir renna saman og
mynda eina heild og nemand-
inn er fær um að endurraða
þeim og finna sjálfur upp ný
tengsl á milli þeirra.
Aristóteles var mikill og
skapandi hugsuður. Hann gat
þróað þekkingarmunstur og
séð tengsl milli ólíkra hluta
sem enginn annar gat séð.
Hæfir hugsuðir reyna aö finna
tengsl á milli einstakra þekk-
ingarpakka og láta þau síðan
falla inn í eigin heimsmynd."
TÖFRAFORMÚLA
EKKI TIL
„Ég held að kennarar geti
hjálpað nemendum sínum að
verða hæfir hugsuöir, það er
að gera hugsun þeirra mark-
vissa og skipulagða," segir
Jamie-Lynn. „í því skyni hefur
verið komið á fót námskeiðum
þar sem háskólakennurum er
kynnt þetta nýja sjónarhorn í
kennslufræðinni. Einnig reyn-
um við að breyta viðhorfi
kennaranna og vekja athygli
þeirra á sálfræðinni sem liggur
aö baki því að tileinka sér
þekkingu, að læra. Undirtekt-
irnar eru óneitanlega misjafn-
ar. Sumir kennarar vilja ein-
faldlega fá töfraformúlu fyrir
árangursríkri kennslu en hún
er því miður ekki til. Galdurinn
Frh. á bls. 62
58 VIKAN 26. TBL. 1991