Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 82
=*m
Joe Mantegna lék i stórmyndinni
Síðan voru það myndirnar Fa-
mily Prayers og hin nýja kvik-
mynd Woody Allen. í henni
leika líka Jodie Foster og
Madonna.
Joe Mantegna er 43 ára
gamall og er giftur leikkonunni
Arlene sem hann giftist árið
1975. Giftingin fór fram á mjög
frumlegum stað, í Eiffelturnin-
um. Auk þess er hann ham-
ingjusamur heimilisfaðir. Ar-
lene, eiginkona hans, gaf leik-
listina upp á bátinn eftir að þau
giftu sig. Hún hefur meira yndi
af því að sjá um húsið og
börnin.
Joe Mantegna hefur haft
mjög náið samstarf við uppá-
haldsleikstjóra sinn, David
Manet, sem leikstýrði honum
meðal annars í myndunum
House of Games (1987) og
Things Change (1988). Nýj-
asta mynd þeirra, Homicide,
fjallar um Baltimore-löggu af
The Godfather III.
gyöingaættum sem þarf að
brjóta lögin til þess aö hefna
sín á þrjótum sem leggja hatur
á gyðinga.
Joe Mantegna er af ítölsk-
um ættum, innflytjendasonur
og kemur úr verkamannafjöl-
skyldu. Hann fékk snemma
áhuga á leiklist, hóf að leika
þegar hann var í mennta-
skólanámi árið 1969. Árið
1973 slóst hann í för með far-
andleikfélaginu Organic Thea-
ter. Fyrsta almenna kvik-
myndahlutverkið fékk hann þó
ekki fyrr en árið 1987 þegar
hann lék mikinn spilasvindlara
í House of Games sem fékk
verðskuldaöa athygli.
Joe Mantegna hefur fengið
hin bestu ummæli frá þekktum
kvikmyndastjörnum. Mia Farr-
ow hafði þetta að segja um
frammistöðu hans í myndinni
Alice: Allir vita hversu indæll
og góður leikari Joe er. Hann
er samviskusamur, trúr,
traustur og mannlegur.
Don Ameche, sem var mót-
leikari hans í myndinni Things
Change, sagði þetta um hann:
Joe er indælasta mannvera
sem ég hef hitt. Hann er ein-
beittur, vingjarnlegur og at-
vinnumaður á sínu sviði.
Hinn þekkti Nick Nolte (48
Hours, Another 48 Hours)
sagði stutt og laggott: Joe er
skínandi góður leikari. Þeir
tveir léku saman í myndinni
Weeds sem hefur enn ekki
verið sýnd hér á landi.
Joe Mantegna er kominn til
að vera. □
FRÍAR HEIMSENDINGAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR
PÖNTUNARSÍMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grensásvegi10
- þjónar þér allan sólarhringinn
I þriðju
Godfather-
myndinni
lék Joe
Mantegna
mafíu-
keppinaut
Don
Corleones
sem leikinn
var af stór-
leikaranum
Al Pacino.
NÆRMYND AF
LEIKARANUM
JOE MANTEGNA
Við erum stödd við Hell Gate
Bridge þar sem leikarinn Joe
Mantegna hangir í krana í
háloftunum. Hann þurfti að
gera sér þaö að góðu að fram-
kvæma þetta áhættuatriði
sjálfur. Engin elsku mamma
hér, enginn áhættuleikari.
Myndskeið þetta munu vænt-
anlegir áhorfendur sjá í kvik-
myndinni Queens Logic. Þeg-
ar hann var kominn niður á
móður jörð var honum tjáð að
leikstjórinn Woody Allen hefði
hringt og óskað eftir símhring-
ingu til baka. Woody Allen
hafði notað Joe Mantegna f
mynd sinni Alice sem gerð var
í fyrra. í þeirri mynd lék Joe
Mantegna saxófónleikara sem
heldur við gifta konu, leikna af
Miu Farrow, eiginkonu
Woody Allen. Allen var það
ánægður með frammistöðu
Joes Mantegna að hann vildi
fá hann aftur til sín í mynd.
Mikill asi var á Joe Mant-
egna í fyrra og enn meira
gengur á hjá honum þetta árið.
í fyrra lék hann með stuttu
millibili í myndunum God-
father III, Alice, Wait Until
Spring, Bandini þar sem
hann iék á móti Faye Duna-
way og Queens Logic sem
minnst var á hér í upphafi. Á
Hinn skínandi leikari Joe Mantegna.
þessu ári lék hann í myndum
eins og Homicide, sem Regn-
boginn mun sýna ef ekki er
þegar byrjað að sýna hana, og
Bugsy, mynd Barry Levin-
son (Avalon, Rain Main,
Diner). Auk hans leika f mynd-
inni Warren Beatty og eigin-
kona hans, Annette Bening.
82 VIKAN 26. TBL 1991
CHRISTOF WEHMEIER TÓK SAMAN