Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 87
HÁRGREIÐSLUMEISTARAR
Frh. af bls. 85
óperu sem sprengt hefur tón-
stigann. Hér fer greinilega vin-
sæl kona í sínum hópi, vin-
sældir hennar felast ef til vill í
eftirfarandi viöhorfi hennar til
félaga sinna: „Viö erum öll ein
fjölskylda. Auðvitað er meting-
ur milli stofa en þegar á reynir
stöndum við saman!“ sagði
Arnfríður og þetta samþykkti
salurinn svo ekki varð um villst.
Einar Oddur Kristjánsson
steig næstur á stokk og flutti
hárgreiðslumeisturum kveðjur
og egg frá Vinnuveitenda-
sambandi Islands. Reyndar
var ekki um neitt venjulegt
hænuegg að ræða heldur tákn-
rænt listaverk sem Einar Odd-
ur skýrði með því að segja þá
strákana gefa þeim stelpun-
um, sem reyndar eru enn í
miklum meirihluta félags-
manna, egg í djúpri merkingu
hugtaksins. Einnig var meðal
ávarpenda Eiríkur Þorsteins-
son frá Meistarafélagi hár-
skera. Minntist hann rakara á
15. öld sem þá voru ekki taldir
til efri stétta. Hárskeraiðn
þeirra tíma þótti ekkert eiga
skylt við list sem brotist hefði út
í hárgreiðsluiðninni. Nú er hins
vegar öldin önnur og hárskerar
hafa náð að saxa heilmikið á
forskotið.
Fleiri tóku til máls og veröur
ekki rakið hér en skemmtilega
þóttu ræðumenn stutt- en þó
gagnorðir þannig að gestir há-
tíðarinnar þurftu ekki að sitja
undir miklum ræðuhöldum
sem oft þykja langdregin og
leiðinleg. Meira að segja rakti
Sigurður Grétar Benónýsson,
reyndar betur þekktur sem
Brósi, sögu félagsins þannig
að öll aðalatriði hennar komu
skýrt fram án þess að um lang-
an fyrirlestur væri að ræða. Að
ávörpum loknum var ekki beð-
ið boðanna heldur sýningunni
skellt í gang.
HEILSUFAR í H>ETTU?
Fyrst var gefið sýnishorn af
fjórða áratug þessarar aldar
með skemmtilegri blöndu bún-
inga, hárgreiðslu og leikrænn-
ar tjáningar sýningarfólksins í
anda tímabilsins. Þó að þarna
hafi hárgreiðslan verið í önd-
vegi eins og á sýningunni í
heild sinni varð ekki hjá því
komist að óttast lítillega um
heilsufar sýningarstúlknanna
vegna ógnvænlegs vindlinga-
munnstykkis sem ein þeirra
hafði millum fingra sinna og
eflaust hefur verið yfir hálfan
metra að lengd. Handhafa
stykkisins fórst þó hlutverk sitt
það vel úr hendi að aldrei var
raunveruleg hætta á ferðum.
Síðan komu fulltrúar hvers
áratugar í timaröð og hvert at-
riði var kynnt af líflegum
dönsurum, lítt klæddum, ung-
um manni sem renndi sér niður
súlu líkt og slökkviliðsmaður
sem gleymt hefur að klæðast
búningi sínum og léttfættri
ungri stúlku sem hoppaði og
skoppaði um sviðið eins og
móðir jörð hefði skyndilega
misst aðdráttarafl sitt. Þannig
rann sýningin létt í gegn með
alls kyns bylgjum, krullum og
krúsindúllum hársins í stíl
hvers tímaskeiðs. Bylgjum og
krullum, já, ein var þó undan-
tekningin á þvf þar sem túlkuð
var tíska blómabarnanna
svokölluðu eða sextíu og sjö
kynslóðarinnar. Slíkur var ein-
faldleiki þeirrar tísku að varla
hefur verið örtröð í bækistöðv-
um hárgreiðslumeistara í þann
tíð.
GRÍNIÐ, FAGIÐ,
ALVARAN
Þegar hárgreiðslumeistarar
höfðu rennt sér um tímann á
sviðum viðhafnar og venjulegr-
ar hárgreiðslu tók við útlistun
brúðargreiðslna tímabilanna.
Þar fór vel útfærð og falleg sýn-
ing en léttleikinn var þó ekki
langt undan svo sem virðist
vera vísa hárgreiðslufólks,
smákrydd svona! Þorsteinn
Magnússon fór á kostum í hlut-
verki prestsins með sterkum
svipbrigðum og látbragði.
Þannig hafði þessi sýning, sem
annars lýsti einni mestu ör-
lagastund konunnar, yfir sér
skemmtilega blæblöndu gríns,
alvöru og fagmennsku.
Að síðustu er vel viðeigandi
að minnast á sögu Brósa sem
sló með henni botninn í sinn
þátt. Brósi átti nefnilega for-
láta skyrtu sem mun vera fag-
systkinum hans og viðskipta-
vinum vel kunn. Á baki skyrt-
unnar voru einhver orð á
frönsku sem Brósi gat ekki túlk-
að vegna skorts á fransktyngi.
Hann var þó ekki í rónni fyrr en
hann hafði snúið baki sínu að
einum frönskumælandi við-
skiptavini sínum í stólnum og
fengið þar með boðskap skyrt-
unnar góðu. Orðin voru á
þessa leið að þýðingunni lok-
inni: Vel greidd kona lýsir sem
logandi kyndill. □
Nærf atnaður og náttföt
fyrir alla fjölskylduna
Svissneska gæðaframleiðslan
frá CALIDA er góður kostur
-ekki eingöngu gæðanna vegna
heldur líður öllum vel í þessum
nátt- og nærfatnaði.
Öll fjölskyldan velur nærföt
og
náttföt frá
CALIDA
LAUGAVEGI 30 - SÍMI 624225
SENDUM í PÓSTKRÖFU
PARÍSARbúðin
AUSTURSTR/CTI 8 - SÍMI 14266