Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 35
um. Þar með brotnaði ísinn og
eftirleikurinn varð auðveldur.
Ég álít að til þess að geta náð
verulega góðum myndum af
fólki þurfi maður að búa yfir
ýmsum hæfileikum góðs sál-
fræðings. Ljósmyndarinn
verður að geta fengið fólk á sitt
band og látið eins og hann hafi
þekkt það alla tíð.
Aðspurður um hvort hann
vildi segja eitthvað sérstakt
um Sigríði Jónsdóttur, brúði
nóvembermánaðar, sagði Ás-
grímur að hún hefði verið mjög
indæl og elskuleg eins og
reyndar allar brúðir sem hann
hefði kynnst. „Ég segi henni
síðan til hróss," bætti hann
við, „að hún er Innbæingur hér
á Akureyri og ættuð þaðan
reyndar-og brúðguminn líka,
rétt eins og ég. Ég hef myndað
þessa krakka áður og fest
stóratburði úr lífi þeirra á filmu
eins og ferminguna, systkini
þeirra hafa líka komið hingað
á stofuna. Þegar maður hefur
verið í þessari grein í nokkra
áratugi getur maður fylgst vel
með því fólki sem hingað
kemur. Ég er til dæmis um
þessar mundir að mynda börn
þeirra barna sem ég tók mynd-
ir af í upphafi ferils rníns."
MYNDAR LÍKA HUNDA
Ásgrímur sagði að á undan-
förnum árum hefði það færst í
vöxt norðan heiða að fólk
kæmi með hundana sína í
myndatöku og væri þetta orð-
inn skemmtilegur þáttur í starf-
inu og kær tilbreyting. „Það
þarf nefnilega líka að hafa lag
á hundunum því þeir geta ver-
ið ómögulegir þegar þeir eru
látnir sitja fyrir. Því bið ég eig-
endur þeirra um að koma með
þá hingað á stofuna daginn
áður en myndatakan er fyrir-
huguð. Þá venjast hundarnir
aðstæðum hér, geta lyktað að
vild og kannað umhverfið. Það
er jafnframt mikilvægt að þeir
óttist Ijósmyndarann ekki og
því er gott að þeir kynnist hon-
um fyrst svo þeir treysti honum
þegar alvaran tekur við. Hund-
ar geta verið afar lúpulegir á
myndum ef þeir eru slæmir á
taugum eða áhugalausir.
Sama er reyndar að segja um
mannfólkið en f þeim tilvikum
er auðveldara að koma fyrir-
sætunum til."
Gefiö meðgöngunni
hátíðlegan blæ í jólafötunum
frá okkur
Fis-létt
Grettisgötu 6
Sími 626870
Stefán Már Jónsson
framkvæmdastjóri:
Námskeiöiö Sjálfstraust og
samskiptaleikni hefur eflt mig
sem starfsmann og einstakling
ásamt því að opna augu mín
fyrir nýjum leiðum til að ná
árangri.
Kolbrún Markúsdóttir
Kaupmaöur:
Skrifstofutækninámið kom mér
mjög á óvart þar sem ég hafði
aidrei komið nálægt tölvum.
Eftir skóiagönguna nýti ég
tölvuna til sem flestra hluta við
reksturinn.
Stjómtækniskóli íslands • Tölvuskóli
Boðið er markvisst nám í
mannlegum samskiptum
og stjórntcekni fyrir
stjórnendur deilda og
minni jyrirtœkja. Vakin
er sérstök athygli á: nám-
inu Sjálfstraust og sam-
skiptaleikni. Fjármála-
stjórn minni fyrirtcekja.
Stöðugt eru gerðar auknar
kröfur til starfsfólks á
skrifstofum. Góð almenn
menntun í Skrifstofutœkni
er lykillinn að slíkum
störfum í framtíðinniAð
auki eru í boði fjölmörg
námskeið í notendahug-
búnaði einmenningstölva.
26. TBL. 1991 VIKAN 35