Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 8
•I
PENINGAR ERU TIL
ALLS FYRSTIR
- EKKI ORÐ
■ Það kemur berlega í Ijós á
árinu að orðin ein eru ekki
máttug þegar aö kreppir í
þjóðlífinu. Stjórnmálamenn
munu hafa uppi margar tilgát-
ur um hvernig bregðast eigi
við þjóðarvanda sem snýst
meira um fjármál nú en nokkru
sinni. Svar landsmanna við
hinum margvíslegu hugmynd-
um verður krafa um peninga í
vasann umfram allt. Seðla-
bankinn verður á árinu smám
saman allsráðandi í stefnu-
mótun peningamála og fjár-
skuldbindinga þjóðarinnar og
verða mikil umskipti innan
þessarar stofnunar næsta ár.
Þar verða ör mannaskipti (
lykilstöðum.
■ Gengisbreyting verður í
umræðunni þar sem erfiðlega
mun ganga aö sætta vissar at-
vinnugreinar við tilhugsunina
um að fá ekkert í sinn hlut
áður en tekin verður loka-
ákvörðun um sameiningu ís-
lensku krónunnar við Evrópu-
myntina ECU.
KJARAMÁL OG
KÓLNANDI STJÓRNAR-
SAMSTARF
■ Kjaramál verða I brenni-
depli og launakröfur fyrirferð-
armiklar í byrjun ársins. Þar
verða notuð stór orð í byrjun
en vegna fyrirsjáanlegs at-
vinnuleysis mun takast eins
konar þjóðarsátt. Launafólk
um land allt mun ekki kunna
verkalýðsleiðtogum neinar
þakkir fyrir frammistöðuna og
þeir eiga í vök að verjast.
■ Átök munu halda áfram
innan stjórnarflokkanna
beggja fram til vors. ( Alþýðu-
flokknum verður áberandi
valdabarátta í kringum for-
mannssætið. Misheppnuð til-
raun verður gerö til þess að
bola núverandi formanni úr
stöðu sinni með því að bera
hann fyrir neikvæöum en
ósönnum ummælum um hátt
VOLVU
SMIN
1992
Mun hann standa í
leynilegum viðræðum
við áhrifamenn innan
EB?
Er Albert að yfirgefa
sendiráðið í París?
Upp koma
deilur um
dagpen-
inga í
röðum
ráðherra
og alþingis-
manna.
áður. Ég segi ekki að það þurfi
alltaf aö vera miður að svo sé
því mér sýnist að sú árátta
okkar að búa sífellt til ný
vandamál hafi einmitt orðið til
þess að fleyta okkur áfram á
framfarasviðinu og þannig höf-
um við „komist til rnanns1'
meðal þjóða. En við höfum
líka gleymt eða vanrækt og
líklega í ríkari mæli en margar
aðrar þjóðir sem hafa notað
tímann vel meðan á dag-
draumunum stóö.
settan stjórnmálamann á
Norðurlöndunum. Upp kemur
einnig umræða innan Alþýðu-
flokksins undir vorið um að
slíta stjórnarsamstarfinu en
hún jafnframt kveðin niður
af flestum forystumönnum
flokksins.
■ Ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins munu sameinast um
að standa við bakið á for-
manninum þegar upp kemur
kvittur um að hann standi í
leynilegum viðræðum við á-
hrifamenn innan Efnahags-
bandalagsins. Þessi orðrómur
mun eiga rætur aö rekja til
þess að forsætisráðherrar
Evrópulanda, sem funda sam-
eiginlega, vilja fá skýr svör frá
íslenska forsætisráöherranum
um hvað (slendingar vilji láta í
staðinn fyrir verulega efna-
hagsaðstoð sem leitaö er eftir.
Ekki mun þó þurfa að blða
lengi þar til allt máliö verður út-
skýrt fyrir þjóðinni.
■ Stjórnarsamstarfið mun
haldast út árið. Þó getur
brugðið til beggja vona vegna
gagnkvæms vantrausts stjórn-
arflokkanna og nokkurs fylgis-
taps beggja í skoðanakönnun-
um. Kosningar verða samt
ekki á komandi ári.
STERK EN SUNDRUÐ
STJÓRNARANDSTAÐA
■ Formenn Alþýðubandalags
og Framsóknarflokksins verða
samstiga f harðri andstöðu
gegn ríkisstjórninni og munu
við ýmis tækifæri reyna að fá
til liðs við sig einstaka þing-
menn úr stjórnarflokkunum.
Mun það ganga svo langt að
áhrifamenn innan Sjálfstæðis-
flokksins krefjast yfirlýsinga frá
hendi ákveðinna þingmanna
um flokkshollustu. Kvennalist-
inn nær sér ekki á strik svo
séð verði og þar f flokki verður
til umræöu aö fá harðskeyttari
konur til liðs við flokkinn.
■ Stjórnarandstaðan sýnist
sterk en allsundruð þegar á
heildina er litið vegna ónógrar
samstöðu frá Kvennalista og
ómarkvissra yfirlýsinga á ýms-
um sviðum varðandi samn-
inga við Evrópubandalagið og
aðra erlenda hagsmunaaðila.
DEILUMÁL OG
DÆGURMÁL
■ Búnaðarbankinn verður
ekki seldur á næsta ári en deil-
ur halda áfram um nauðsyn
fleiri en eins rfkisbanka hér á
landi.
■ Óánægja kemur upp í
röðum ráðherra og alþingis-
manna vegna fyrirhugaðs niö-
urskurðar á dagpeningum á
ferðum erlendis. Deilur um
þetta mál leysast ekki á árinu.
■ Raunvextir munu lækka
umtalsvert seinni hluta jan-
úarmánaðar, þrátt fyrir gagn-
rýni margra bankamanna.
H Þjóðminjasafniö fær ekki
fjárveitingu sem nægir til við-
gerða og viðhalds og stöðvað-
ar verða greiöslur til Þjóðleik-
hússins til framhaldsviðgerða.
H Bygging handboltahallar
verður endanlega úr sögunni á
árinu.
H Greiðslukort verða tekin í
notkun á bensínsölum hjá
einu olíufélaganna næsta vor.
Samkeppni harðnar milli olíu-
félaganna.
H íslenskt, áhrifaríkt hálfopin-
bert fyrirtæki leitar til Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar hjá Sony til
að gegna stjórnarformennsku
hjá sér. Svar við þessari beiðni
verður ekki komið fyrir árslok.
H Skipafélag hefur siglingar
með farþega frá íslandi til
Evrópu næsta sumar með
reglulegum hætti, annaöhvort
frá Reykjavík eða Þorláks-
höfn.
H Nýtt dagblað sér ekki dags-
ins Ijós á nýju ári, hvað sem
síðar verður.
H Mannaskipti verða í æðstu
stöðum hjá LÍÚ og Samtökum
fiskvinnslustöðva. Mikil um-
skipti verða í rekstri þessara
samtaka beggja.
H Byggðastofnun verður ekki
svipur hjá sjón miðað við fyrri
umsvif og þar verður um veru-
lega fækkun starfsfólks að
ræða.
H Umsvif íslandsbanka
minnka einnig á árinu en
Landsbankinn tekur við mun
stærra hiutverki í fjármála-
heiminum en nokkur önnur
bankastofnun hér.
H Rekstur Áfengis- og tób-
aksverslunar ríkisins verður
endurskoðaður frá grunni og
starfsemi hennar skipt upp.
H Reglugerð um aö áfengan
bjór og létt vín megi selja í
stórum matvörubúðum sér
dagsins Ijós á árinu.
H Sendiherraskipti verða í
París síðla árs og þekktur
stjórnmálamaður gerir tilkall til
þessa embættis.
H Nýr stjórnmálaflokkur, sem
samanstendur af öryrkjum
og samkynhneigðum, boðar
komu sína á stjórnmálasviðið.
H Hellaferðir bætast nú á
dagskrá skoðunarferða með
erlenda ferðamenn og sumar-
gisting við eða á bændabýlum
framlengist í vetrargistingu
sem spyrst fljótt út sem vinsæl
nýbreytni. Þetta dregur marga
erlenda ferðamenn að strax
næsta haust og vetur.