Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 52
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR MYNDIR: TRAPP FAMILY LODGE, FERÐAMÁLARÁÐIÐ OG PANORAMA TOURS í SALZBURG
Julie Andrews og börnin syngja Do Re Mi.
Hohensalzburg-kastali í baksýn.
FJOLS
(icopp ÍYömííij £obcje
URTONAFLOÐI
RAUNVERULEG
- og rekur nú hótel í Bandaríkjunum
m starævintýri ungu stúlkunnar Maríu,
Jssem haföi ætlaö sér aö eyða ævinni í
klaustrinu Nonnenberg í Salzburg,
og Trapps baróns, fyrrum sjóliðs-
MÍ m foringja, gleymist engum sem séð
hefur kvikmyndina Sound of Music eöa
Söngvaseiö, eins og söngleikurinn, sem
byggöur er á sömu sögu, var nefndur þegar
hann var sýndur í Þjóðleikhúsinu í vor sem
leið. Fæstir hugsa þó út í aö Trapp-fjölskyldan
var raunverulega tilog það sem meiraer-hún
lifir enn, þótt ekki sé hún í Salzburg í Austurríki
heldur í Vermont í Bandaríkjunum, þar sem
hún rekur hótel með austurrísku sniði.
„Á hverjum einasta degi í yfir tuttugu ár hafa
verið farnar ferðir með stóra hópa ferðamanna
á þá staði í Salzburg og nágrenni þar sem
kvikmyndin Sound of Music var tekin og áhug-
inn minnkar ekkert," sagði Roswitha Holtz,
blaðafulltrúi hjá Ferðamálaráðinu í Salzburg,
þegar ég ræddi við hana fyrir nokkru. „Það
María von Trapp eftir að hún var komin til
Bandaríkjanna.
nægir þó að hafa enskumælandi leiðsögu-
menn með hópunum því flestir eru ferða-
mennirnir af bandariskum uppruna."
MARÍA EKKI HRIFIN AF MYNDINNI
Roswitha Holtz segir mér að Trapp-fjölskyldan
hafi búið í einu af úthverfum Salzburg - Aigen.
Von Trapp barón hafi verið virtur sjóliðsforingi
í sjóher Keisaradæmisins Austurríkis-Ung-
verjalands, sem hafði bækistöð við Adríahafiö
( fyrri heimsstyrjöldinni. María hafi í raun og
veru ætlað að verða nunna í Salzburg. Margt
fór öðruvfsi en ætlað var en víkjum að því
síðar. Frú Holtz segir aö líklega hafi fátt ef
nokkuö dregið jafnmarga ferðamenn til Salz-
burg og einmitt Sound of Music. Hún segir líka
að hún hafi sjálf hitt Maríu von Trapp þegar
hún kom til Salzburg i síðasta skiptið árið 1986
og spurt hana þá hvað henni sjálfri hefði fund-
ist um kvikmyndina. María von Trapp var ekki
jafnhrifin af myndinni og hinn almenni kvik-
52 VIKAN 26. TBL. 1991