Vikan - 12.08.1993, Qupperneq 19
STÆRÐ: S M L
Yfirvídd: 107 117 126 cm
Sídd frá öxl: 69 71 73 cm
Ermalengd: 47 48 49 cm
EFNI: FLOS frá ÍSTEX Svart (nr. 0420); 400 400 450 g
Hvítt (nr. 0401): 250 300 300 g
Rautt (nr.9009): 100 100 100 g
Hnappar: 7 stk.
Prjónar:
Hringprjónar nr. 3 1/2 og 4 1/2, 80 cm langir.
Hringprjónn nr. 4 1/2, 40 cm langur.
Sokkaprjónar nr. 3 1/2.
PRJÓNFESTA: 17 lykkjur og 22 umferðir
tvíbandaprjón á prjóna nr. 4 1/2 = 10 x 10 cm.
Sannreynið prjónfestuna, breytið um prjóna-
stærð ef með þarf.
SKAMMSTAFANIR: L = lykkja(-ur), umf =
umferð(-ir), sl = slétt, br = brugðið, prj =
prjónið, ent = endurtakið.
PRJÓNAÐFERÐIR:
Stroff: * 1 L sl, 1 L br *, ent frá * til *.
Munstur 1 og 2: Prj sl samkvæmt teikningu.
BOLUR: Fitjið upp með rauðu 191-205-219 L
á hringprjón nr. 3 1/2. Prj fram og til baka; prj
með svörtu 1 umf br, síðan stroff með svörtu
þannig: Prj 1 L sl (jaöarL sem er prjónuð slétt
á réttunni og röngunni), prj stroff, endið á 1 L
sl (jaðarL). Athugið að á réttunni verður
næsta L við hvora jaöarL að vera sl L, annars
verða hnappa- og hnappagatalisti ekki réttir.
Prj fram og til baka þar til stroffið mælist 2,5
cm, gerið þá 1 hnappagat hægra megin á
réttunni þannig: Prj 6 L, sláið bandinu upp á
prjóninn, prj 2 L sl saman, prj út umf. Prj stroff
eins og áður þar til stykkið mælist 4 cm.
Næsta umf (rétta): Prj 12 L, setjið þær L síðan
á hjálparband/-nælu, aukið út um 16-18-20 L
næstu 167-181-195 L, setjið síðustu 12 L á
hjálparband/-nælu (=183-199-215 L). Skiptið
yfir á hringprjón nr. 4 1/2. Fitjið upp 2 L
(aukaL sem eru prj br upp allan bolinn og telj-
ast ekki með í munstri), tengið saman í hring
og prj Munstur 2, prj þá Munstur 1 þannig: Prj
frá A til B (miðja á baki) og síðan frá C til A.
Prj þar til allur bolurinn mælist 62-64-66 cm.
Prj þá aftur Munstur 2, fellið af í 4. munstur-
umf 2 br aukaL og fyrstu og síðustu 5-6-6 L í
umf. Prj nú fram og til baka og fellið af báðum
megin við hálsmál í 6. munsturumf 6-6-6 L.
Felliö allar L af með rauðu. Merkið fyrir
hálsmáli þannig: 31-33-35 miðL að aftan og
15-16-17 L á hvorum boðangi að framan.
ERMAR: Fitjið upp með rauðu 40-40-42 L á
sokkaprjóna nr. 3 1/2. Tengið saman í hring
og prj með svörtu 1 umf sl, síðan stroff þar til
stykkið mælist 4 cm. í síðustu stroffumf er
aukið út um 14-14-14 L (=54-54-56 L). Skiptið
yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna nr. 4 1/2
og prj Munstur 2, aukið út í síðustu munstur-
umf um 2 L (1 L eftir fyrstu L og 1 L fyrir
síðustu L í umf). Prj þá *2 umf með svörtu, 2
umf með hvítu*, ent frá * til *, þar til öll ermin
mælist 44-45-46 cm (eða eins og þarf), aukið
samtímis út um 2 L í 4. hverri umf þar til 94-
94-98 L eru á prjóninum. Prj aftur Munstur 2
og fellið af með rauðu.
AXLASTYKKI: Fitjið upp 16 L með svörtu á
prjóna nr. 4 1/2. Prj fram og tilbaka (sl á rétt-
unni, br á röngunni) *2 umf meö svörtu, 2 umf
með hvítu*, ent frá * til *, 18-20-22 cm. Fellið
af. Prj annað stykki eins.
FRÁGANGUR: Gangið vel frá lausum
endum. Leggið ermar við bol og þræðið sídd
handvegs, athugið að axlastykkin verða
saumuð við affellinguna efst á bol og við 14
miðjuL á ermum. Saumið í vél með beinu
þéttu spori 2 sauma hvorum megin við
þræðinguna, klippið upp á milli. Saumið í
hvora br aukaL fyrir miðju að framan, klippið
upp á milli. Saumið axlastykkin við fram- og
bakstykki á réttunni, látið axlastykkin ná að
merkingu fyrir hálsmáli. Saumið ermar í hand-
veg á réttunni.
LISTAR:
Hnappalisti (vinstri): Byrjið á röngunni. Setjið
12 L af hjálparbandi/-nælu á prjón nr. 3 1/2,
fitjið upp með svörtu 3 kantL, prj fyrrnefndar
12 L eins og áður en prj kantL sl á réttunni og
br á röngunni. Prj listann jafnlangan boðangi
(teygið svolítið á listanum þegar mælt er), fell-
ið af kantL, geymið hinar 12 L á hjálparbandi/-
nælu. Saumið listann við boðanginn á réttunni
(saumið við sl L á boðangi og sl L á lista).
Saumið kantinn (3 kantL) þannig niður á röng-
unni að hann hylji vélsauminn.
Hnappagatalisti (hægri): Merkið fyrir hnöpp-
um á vinstri lista og ákveðið hvar hnappagöt
eiga að vera (alls 7 hnappar á peysu). Neðsta
hnappagat hefur þegar verið gert, efsta
hnappagat verður gert í hálslíninguna, 2 cm
frá neðri brún. Prj listann eins og vinstri lista
og gerið hnappagöt eins og gerð voru í stroffi
að neðan. Saumið listann við boðang.
HÁLSLÍNING: Prj með svörtu á prjóna nr. 3
1/2; prj 12 L af hvorum lista, takið upp 15-16-
17 L á hvorum boðangi, 14 L á hvoru
axlastykki og 31-33-35 L á baki (=113-117-
121 L). Prj stroff fram og til baka. Prj hnappa-
gat í hálslíninguna þegar hún mælist 2 cm, prj
áfram með svörtu þar til líningin mælist 4,5
cm. Prj þá 1 umf sl (á réttunni) með rauðu og
síðan stroff með rauðu 2 cm. Prj aftur með
svörtu; prj 1 umf sl og síðan stroff 2,5 cm. Prj
þá hnapþagat í líninguna. Prj loks stroff með
svörtu 2 cm og fellið laust af. Brjótið líninguna
til helminga og saumið hana saman I hliðum.
Varpið saman hnappagötin og saumið
líninguna við hálsmálið. □
16.TBL. 1993 VIKAN 19