Vikan - 12.08.1993, Síða 28
TEXTI: ANNA HILDUR HILDIBRANDSDÓTTIR / MYNDIR GÍSLIÞÓR GUÐMUNDSSON
OAlUR
BN
OÓDIR*.
OO
lNbxJ
J
PJORI
Höfuðpaur hljómsveitar-
innar Kinks, Ray
Davies, sýndi áhang-
endum sínum á tónleikum í
London nýverið að hann er
enn maður stórkostlegrar
sviðsframkomu. Þrátt fyrir að
hann sé orðinn 47 ára gamall
gefur hann ekkert eftir og hélt
uppi fullu fjöri í tvo tíma stans-
laust; alltaf sami kraftmikli
rokkarinn, ófeiminn við að
bera pólitískan boðskap á
borð fyrir áheyrendur sína.
Tónleikarnir voru þeir síðustu
f tónleikaferð hljómsveitarinn-
ar sem farin var í tilefni af
útkomu breiðskífunnar Phobiu
fyrr á þessu ári.
Framan af tónleikunum
sýndu jafnaldrar hljómsveitar-
meðlimanna í áhangenda-
hópnum þó merki þess að
virðuleiki aldursins hafði færst
yfir en Ray gaf þeim engan frið
og lét þá vita af því að Lola og
aðrir gamlir slagarar yrðu ekki
fluttir fyrr en þeir væru tilbúnir
að sleppa fram af sér beislinu.
Kraftmiklir rokkarar Phopiu
voru góð upphitun og virðuleg
samkoman breyttist því smám
saman í fjörugt partí þar sem
allt ætlaði um koll að keyra í
lokin. Eftir að hafa verið klöpp-
uð upp eftir Lolu og aftur eftir
You Realy Got Me lauk
hljómsveitin tónleikunum á
óvæntan en eftirminnilegan
hátt.
„Skrifað af Bítlunum og flutt
af Kinks í kvöld" - Twist and
Shout og ánægðir tónleika-
gestir luku kvöjdinu í léttri
sveiflu. □
Dcbi Doss var í þriója skipti á tónleikum
með Kinks. „Þeir hafa engu gleymt og Ray
er alltaf óborganlegur á sviði." Debi segir
að fyrsta platan, sem hún hafi eignast,
hafi verið með Kinks, Well Respected
Man, þá tólf ára gömul. Seinna á lífsleið-
inni fékk hún tækifæri til að vinna með
poppgoðinu sínu. „Ég söng með Kinks á
árunum 1974 til 1977 ásamt fleiri söng-
konum,“ segir Debbie og útskýrir að þetta
hafi verið á því tímabili sem Ray Davies
skrifaði söngleiki. Eflaust hefðu margir af
eldri aðdáendum Davies viljaö vera í spor-
um Lauren Doss, sjö ára dóttur Debbie,
þegar hún fór baksviðs eftir tónleikana til
að heilsa upp á þennan fyrrum samstarfs-
mann móöur sinnar í fyrsta skipti.
„Frábærir," sagöi 33 ára gamall Banda-
ríkjamaöur, Terry Marnin, sem var í fjórða
sinn á Kinkstónleikum ásamt eiginkon-
unni, Cheryl Alexander. Þau höfðu fyrir
tilviljun rekist á að þaö væru tónleikar í
Royal Albert Hall með Kinks á meðan þau
dvöldu í fjóra daga í London og notuðu
tækifæriö til að sjá goðin á heimavelli.
Terry er reyndar sjálfur í hljómsveit í
Bandaríkjunum og sagðist ætla til íslands
til aö spila fyrir herinn á næsta ári.
VIKAN Á TÓNLEIKUM
MEÐ KINKS í LONDON
28 VIKAN 16.TBL. 1993