Menntamál - 01.12.1942, Page 22

Menntamál - 01.12.1942, Page 22
84 MENNTAMÁL Hver er vegurinn? Leiðirnar að þessu lokamarki eru vafalaust margar. Hve mörg eru ekki uppeldis- og skólakerfin, sem borin hafa verið fram? Hve margar eru ekki tegundir „nýrra skóla“, sem séð hafa dagsins ljós? Ég hefi átt kost á, að ræða skólamál og skólastefnur við kennara og skólamenn ýmissa þjóða, menn, sem „játuðu“ hinar sundurleitustu skoðanir og kerfi, eða voru játninga- lausir með öllu. En þrátt fyrir allt, sem þeim bar á milli, hygg ég, að þeir allir, eða allflestir, hafi þó í rauninni stefnt að sama marki, því lokamarki, sem áður getur. Æfintýri Andersens um klukkuna í skóginum endurtekur sig hér. Það er aðeins fáum gefið, að skynja markið og skilja eðli þess svo vel, að þeir geti gert aðra þátttakandi í reynslu sinni. Sá maður, sem ég hygg, að hafi komist nær hinum fullkomna skilningi á hlutverki uppeldis og skóla, en flestir aðrir, er „vitringurinn með barnshjartað", Heinrich Pesta- lozzi. Allt ævistarf hans og rit bera þessu vitni. En kjarn- inn í boðskap hans er sá, að uppeldið skuli framar öllu öðru efla með barninu hinn siðrœna starfsþraska, en meg- inþættir þeir, sem hann er gerður af, eru: hlutlægni (Objektivitet) í hugsun og starfi, sannleiksást, ábyrgðar- tilfinning og kærleikur til starfsins og kærleikur til ná- ungans. Þessar eigindir, hver fyrir sig og allar saman, eru nauð- synleg undirstaða að farsælum árangri sérhvers þjóðnýts starfs sem vera skal, hvort sem það eru störf verkamanns- ins, sjómannsins, bóndans, iðnaðarmannsins, húsfreyj- unnar, eða störf kaupsýslumannsins, kennarans, vísinda- mannsins, læknisins, dómarans, prestsins eða þjóðhöfð- ingjans. Þessir eru þeir hornsteinar, sem allt starf mannanna á að hvíla á.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.