Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 5
MENNTAMÁL
67
margir nemendur kennaraskólans og íleiri, heimsóttu
hann og heiðruðu hann með gjöfum.
Enda þótt nú sé nokkuð liðið frá 50. afmælisdegi Frey-
steins, þá munu allir þeir, er þekkja Freystein og ekki hafa
vitað um þennan dag áður, senda honum og fjölskyldu hans
hugheilar árnaðaróskir og óska þess, að hann megi lifa og
starfa sem lengst, landi og lýð til heilla.
H. E.
Aðalsteinn Sigmnndsson:
Ken nsl ustoi* an
i.
Kennslustofan er vinnustofa og dvalarstaður kennara
og nemenda, meginhluta starfsdags þeirra í skólanum.
Nemendurnir eiga að njóta þar fræðslu og vakningar,
hljóta þar tamningu og þjálfun hæfileika sinna. Kennar-
inn á að vera þar sí-viðbúinn verkstjóri, leiðtogi og fræðari,
leysa úr hverjum vanda, og vera alltaf veitandi þekkingu
og glaðan hug. Þegar þessa er gætt, liggur það í augum
uppi, að mjög mikið er undir því komið, að kennslustofan
sé vel og skynsamlega úr garði gjörð. Árangur starfs er
alltaf kominn að meira leyti eöa minna undir aðbúnaðin-
um við starfið. Það á við um kennslu og nám, engu síður
en um aðra vinnu. Vil ég því nota rúm það, er ritstjóri
Menntamála hefir boðið mér í ritinu, til þess að ræða um
kennslustofuna, gerð hennar, útlit og allan útbúnað.
Því eru að visu allþröng takmörk sett, hverju kennarar
geta ráðið um þau húsakynni, sem þeim er gjört að vinna