Menntamál - 01.12.1942, Blaðsíða 11
MENNTAMÁL
73
dyr kennslustofunnar, að-vel fer á að prýða skólagöngin.
Það gjörir skólann vingjarnlegri, eins og hann brosi á móti
þeim, sem að kemur, og þá nemöndum ekki sízt. í nokkr-
um skólum í Danmörku er gipsafsteypum fornra, sígildra
listaverka komið fyrir í göngunum. Slíkar afsteypur eru
ekki sérlega dýrar. — í Svíþjóð hefi ég séð skólagöngin
skreytt með völdum teikningum eftir skólabörn, í látlaus-
um umgjörðum. — Hér á landi mun vera lítið um prýði í
skólagöngum. í Laugarnesskóla er þó upphleypt kort af
nágrenni Reykjavíkur í göngunum. Og í Landakotsskóla
er náttúrugripasafni skólans komið snoturlega fyrir í
glerskáp í göngunum.
IV.
Þá er komið að því, að ræða um útbúnað kennslustof-
unnar, og fyrirkomulag áhalda og efnis í henni. Er hér
einkum miðað við kennslustofu 10—14 ára barna, þar sem
höfundur lína þessara hefir lagt stund á kennslu barna
á þeim aldri, en ekki yngri. En sums staðar á annað við,
þar sem ungum börnum er kennt.
Algengt er og þægilegt, að kennslustofur séu þannig, að
gluggar eru á suðurhlið, borð kennarans við miðjan vestur-
vegg, dyr vestarlega á norðurvegg, austanveggur auður.
Við þetta skal miðað, farin hringferð um stofuna og byrj-
að á vesturvegg.
Rétt verður að telja og nauðsynlegt, að hafa svarta töflu,
um 1 m. á hæð, eftir endilöngum vesturvegg kennslustof-
unnar, bak við borð kennarans. Mun hæfilegt, að frá gólfi
upp að töflunni séu um 90 cm. Áherzlu verður að leggja
á, að taflan sé vel svört, og ekki gljáandi. Aðrir töflulitir
( t. d. brúnt, sem sums staðar er notað hér á landi) eru
óhollir augum nemenda. Listinn neðan við töfluna ætti að
mynda 5—7 cm. breiða hillu, íhvolfa eða með hærri brún
að framan, svo að krít geti stöðvazt þar.
í töflurammanum að ofan þurfa að vera smá-krókar
eða naglar með t. d. 30 cm. millibili, til þess að hengja á