Menntamál - 01.12.1942, Síða 35
MENNTAMÁL
97
hefja sókn og efla viðnám, svo að okkar orðslynga móður-
mál eigi ekki fyrir sér að verða á komandi öldum fábreytt
götumál, sem týni orðsins list og leikni, og glati þeirri
fegurð, sem fjölbreytt orðaval skapar. En það er einkenni
málsins, að eiga mörg orð yfir sama hlut og hugtak, en
það gerir málið, hið ritaða og talaða, lífmeira og breyti-
legra. Orðavalið verður þá undirstaða þess, sem heitir stíll
í framsetningu og gefur máli og stíl persónulegan blæ.
Allir, sem við kennslustörf hafa fengist í kauptúnum og
kaupstöðum, hafa komizt að raun um það, að orðaforði
barnanna er mjög fábreyttur. — Með breyttum vinnu-
brögðum glatast notkun forna orða, nýju orðin og orða-
samböndin, sem hin nýju verkfæri og vinnubrögð mynda,
hafa minna þanþol, ef svo mætti aö orði kveða. Þau eru
oft hversdagslegri og mynda ekki jafn fjölbreytt orða-
orðasambönd. Barn, sem elst upp á miðlungsheimili í kaup-
stað eða kauptúni, þar sem mamma og pabbi eru ýmist
í vinnu utan heimilis eða önnum kafin við heimilisstörf,
kynnist lítið fjölbreyttni móðurmálsins, og hefur litla þörf
fyrir mörg orð og notar fábreytt orðasambönd og rangar
beygingar. Daglegir viðburðir leggja fá verkefni fyrir, sem
krefjast hugsunar og orðleikni, og afleiðingin verður —
fá orð lærð og rangar beygingar orða. — Ef þetta barn
fer svo eitt til tvö sumur í sveit, þar sem dagleg störf
heimta fjölbreyttari orðasambönd, þar sem fólkið talar,
ef til vill meira beint við barnið, og í sumum tilfellum
betra mál, þá kemur barnið aftur í skólann um haustið
auðugra að orðum og orðasamböndum og þroskaðra að
skilningi. — Þetta er tvímælalaust reynsla allra kennara
og þarf ég ekki að rökstyðja það frekar.
En þegar þetta er reynt og sannaö, og þegar nú skólarnir
í fjölmenninu verða meir og meir að taka að sér kennslu
og allt uppeldi barnsins jafnt í þekkingu og æfingu móð-
urmálsins sem öðrum greinum, hvernig geta þá skólarnir
7