Menntamál - 01.12.1942, Síða 9

Menntamál - 01.12.1942, Síða 9
MENNTAMÁL 71 hvorki að lúta yfir það, né teygja sig upp á það. — Mis- stór börn þurfa mismunandi húsgögn. Verður að taka fullt tillit til þess, eigi sízt þar, sem tvísett er í kennslustofur. m. Starfhæfni manna, eigi sízt við andleg verk, er mjög komin undir líðan þeirra og hugblæ. En líðan manna og hugblær fer að nokkru leyti eftir umhverfi manna, og áhrifum þess á þá. Kennslustofan og allt útlit hennar hefir mikil áhrif á líðan og hugblæ bæði kennara og nem- enda, og starfhæfni þeirra um leið. Að öðru jöfnu er betur kennt, betur numið, betur unnið í snoturri, vistlegri, heim- ilislegri kennslustofu, heldur en í tómlegri stofu, fegurðar- snauðri og óvistlegri. Og alltaf er nokkuð til þess vinnandi, að geta kunnað vel við sig þar, sem dvalið er. Það eitt er nóg til þess, að reynt sé að gjöra kennslustofuna sem vist- legasta, þó ekki væri annað við það unnið. Hreinlæti, snyrtileg umgengni, röð og regla gjöra sitt til, að kennslustofa sé vistleg, og þetta þarf fyrst og fremst til þess. Þar næst snotur húsgögn, sem vel er fyrir komið. Kennslustofa með klunnalegum, skældum, skökkum, ó- máluðum, krotuðum og skornum borðum getur aldrei verið vistleg. Þessir ósmekklegu og ljótu hlutir hljóta alltaf að hafa neikvæð áhrif á hugblæ kennara og nemenda, og draga úr starfshæfni þeirra með því, auk þess sem þeir spilla vinnu með því að vera ónothæfir. Ég hefi séð því haldið fram í einhverjum ritum lexíu- skólamanna, að myndir og önnur prýði í kennslustofu dragi athygli frá námsefninu og trufli kennslu. Ég er sann- færður um, að þetta er fjarstæða, og ég styð það m. a. við drjúga reynslu. Kennslustofan er vistlegri og notalegri — mönnum líður þar betur — ef hún er prýdd á smekklegan hátt. Til þess má nota ýmsa hluti, sem koma að beinu gagni við kennsluna um leið, t. d. landakort. Kort af ís- landi og Evrópu og heimskort ættu jafnan að vera uppi á

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.