Menntamál - 01.04.1961, Page 28
18
MENNTAMÁL
I. fl. 9.27
II. fl. 8.33
III. fl. 7.66
IV. fl. 6.95
Við vorpróf í lok 8 ára bekkja voru tölurnar þessar:
I. fl. 8.83
II. fl. 7.73
III. fl. 6.70
IV. fl. 5.04
Mismunur flokkanna er greinilegur, einkum við lok 8
ára bekkja.
Meðaltala úr Levinprófinu í Kópavogssafninu (301 barn)
var 13.0, eða nokkru hærri en í Reykjavík. Standard-dreifi-
tala var 10.3.
Þá skal skýrt frá fylgnitölum milli þroskaprófsins og
einkunna í lestri og reikningi við lok 7 og 8 ára bekkja.
Reikningur
0.47
0.65
Lestur
Vorpróf 7 ára 0.47
Vorpróf 8 ára 0.41
Athyglisvert er hve fylgnin er lág við lestur, þótt hún sé
raunar talsverð. Hún er og heldur lægri en í Reykjavík
og lækkar við vorpróf 8 ára. (Hugsanlegar skýringar verða
ekki raktar hér, en á það skal benda, að hópurinn er ekki
stór — 140 börn.)
öðru máli gegnir með reikning, þar vex fylgnin mjög
skarpt við vorpróf 8 ára og verður þá að teljast mjög sterk.
I Kópavogi voru öll þau börn, sem tóku Levinprófið einn-
ig einstaklingsprófuð með greindarprófi dr. Matthíasar
Jónassonar. Fór sú prófun fram hvort haust, strax og hóp-
prófinu var lokið. Voru seinustu börnin prófuð í jan. það
skólaár, er þau sátu í 7 ára bekk.
Greindarprófstilraunin hefur sjálfstætt gildi og vonandi