Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 16

Heima er bezt - 01.07.1994, Síða 16
Ragnar Þorsteinsson: Eftir- minnileg sjóferð Síðart hluti Fyrri hluti greinarinnar hirtist í fehrúarhefti Heima er hezt 1994 afði ég staðið viðskuldbindingar mínar gagnvart guði? Nei, það var sárt að verða að viðurkenna það að sum loforðin hafði ég hreinlega svikið, öðrum gleymt. Mér fannst ég standa aumkunarlega illa að vígi að leita til hans aftur, líkt og maður sem ekki hef- ur greitt skuld sína en þarf að leita til sama manns um lán. Nú fannst mér þó nauðsyn brjóta lög. I huganum fór ég að skeggræða við guð og leita hófannna um sam- komulag. Af fyrri reynslu vissi ég að hann hafði flest á valdi sínu. Vegna þess að ég vissi upp á mig skömmina að hafa ekki staðið við mín heit, reyndi ég að fara kæn- lega að þessu og freista þess að hræra guð til meðaumk- unar með félögum mínum. „Þú veist, guð, hvernig fer ef hann Siggi á Nesinu drukknar núna. Öll börnin hans fara á bæinn eða verður tvístrað í allar áttir. Þú veist nú hvað það þýðir. Flestir vilja heldur deyja en þola slíka skömm. Nú, ef Níls deyr núna verður Bjarni fósturfaðir hans algjör einstæðingur. Ég gæti nú líka hugsað að hann Árna langaði til að lifa lengur. Hver ætti svo að róa með pabba næsta sumar ef við sökkvum. Svo væri ekki ómögulegt, þegar ég er orð- inn fjórtán ára, að ég kæmist á einhvern stóra bátinn, annars gætum við hreinlega farið á sveitina. En það er voðalega erfitt, guð, að vera góður ... stundum. Það er 232 Heima er best

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.