Heima er bezt - 01.07.1994, Blaðsíða 28
Breiðárósi sá ég mann á vesturbakk-
anum sem var að athuga prammann
og kom hann von bráðar og sótti
mig. Þessi ágæti maður, sem tók á
móti mér, var einn hinna nafnkunnu
Kvískerjabræðra. Hann lét ekki þar
við sitja að ferja mig yfir ósinn því
þarna var hann með söðlaðan hest
handa mér og riðum við heim að
Kvískerjum. Þar var boðið upp á
ágætar veitingar og meira því ég
mátti liafa hestinn áfram að Fagur-
hólsmýri. Þar mátti ég sleppa honum
lausum því hann myndi skila sér
sjálfviljugur heim. Þetta kom sér
ákaflega vel fyrir mig og hélt ég nú
áfram og gisti svo á Fagurhólsmýri.
Þetta var fimmti dagur ferðarinnar
frá Egilsstöðum.
Næsta dag, sem var fimmtudagur
25. júlí, var ég árla á fótum og hóf
nú gönguna vestur Öræfasveit. A
þeirri leið vissi ég um margar ár sem
ég þurfti að vaða yfir og sumar
þeirra vatnsmiklar enda kom það á
daginn að í sumum þeirra var mér
um og ó, en hafði það þó með guðs
hjálp.
Til gamans má geta þess að þegar
ég var að spyrjast fyrir um vöð á
ánum var mér sagt að það væri betra
fyrir mig að fram fram með ánni,
það er niður með henni, þar væri hún
grynnri og þar fengi ég hana ekki
eins stranga og efra. A þessu áttaði
ég mig strax þó að það væri öfugt
við málvenju fyrir norðan því þar
var sagt að maður færi fram til fjalla
og upp með ánni og inn dalinn.
Þegar ég hafði komist klakklaust
yfir árnar á milli Fagurhólsmýrar og
Svínafells var ein á eftir að Skafta-
felli og það var Skaftafellsáin. Yfir
hana varð ég að fá fylgd svo ég fór
heim í Svínafell og þaðan fékk ég
fylgd á hesti yfir ána. Þá var orðið
stutt að Skaftafelli. Þá voru þar þrír
bæir, Bölti, Sel og Hæðir, og stóðu
hátt upp í brattri hlíð. Það þótti mér í
fyrstu undarlegt bæjarstæði.
Ég gekk í hlað á Bölta og spurði
um Odd Magnússon, sem tók mér
vel og hjá honum gisti ég. Ræddi ég
við hann um væntanlega ferð vestur
yfir Skeiðarársand og hvort ég kæm-
ist án fylgdar yfir jökulinn ofan við
upptök Skeiðarár en Sandinn ætlaði
ég að ganga. Oddur var fljótur til
svars og sagði mjög ákveðið í þung-
um tón:
Jökulsá á Skeiðarársandi brýst
undan jökli. Jökulfell til hægri,
Skeiðarárjökull til vinstri.
„Það er engum manni sleppt án
fylgdar og á morgun verður farið
með þig vestur yfir jökul en vestur
Sandinn að Núpsvötnum ertu einfær.
Ég hef samband við Hannes á Núps-
stað fyrir þig og mun hann sækja þig
og koma þér vestur yfir Vötnin.“
Það var svo næsta morgun að Odd-
Gufufoss í Djúpá í Fljótshverfi.
244 Heima er best