Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.07.1994, Blaðsíða 34
og kuldahúfan komnar á sinn stað, enda svalur norðan- frostvindur á Fróni, og hinn aldni göngugarpur segist þess albúinn að skokka með mér spottakorn áður en leiðir skilja. Fjölþætt dagskrá á Breiðdalsvík Svalur sólskinsdagur skil- aði slíkri jökla- og fjallasýn að seint gleymist á ferð minni austur á bóginn til Breiðdalsvíkur næsta dag. Þar ók ég í hlað síðdegis að Sólheimum 6 eftir leiðsögn Astu Maríu Herbjörnsdóttur húsfreyju að Snæhvammi í Breiðdalsvík. Dóttir hennar, Herborg Elísabet, fagnaði gestakomunni með veglegu kaffiboði. Vcl má vera að veislugleð- in hjá Elvu Báru hafi náð há- marki þegar „afi gamli“ af- henti henni áletraðan heið- ursskjöld sem staðfestingu á því að hún var yngsti þátttak- andinn á landsgöngu minni á ári aldraðra 1993. Ætla má að þessi tápmikla, unga stúlka fái fleiri viður- kenningar vegna afreka sinna þegar stundir líða og æviár- um fjölgar. Mér þótti það í frásögur færandi þegar þrjár kynslóðir mér áður ókunnar gengu með mér á landsgöngunni drjúgan spöl í átt til Breiðdalsvíkur og um Breiðdalsvíkurbyggð- Elva Bára með ina. verðlaunaskjöldinn. Slíkar hetjur daganna hittir maður ekki í öllum byggðar- Stefán, Elva Bára og lögum. Elsti ættliðurinn, Ásta móðir hennar, Herhorg María, lét sig ekki muna um Elísabet. það að bæta við gönguferð um Kambanesskriður og fylla þar með 10 km göngutakmarkið þann daginn. Þegar fyrsta þætti laugardagsdagskrárinnar var lokið, tók aldursforseti heimamanna við dagskrárstjórn. Fyrst var ekið um Breiðdalsvíkurbyggðina. Þar gaf víða að líta falleg hús í vel hirtu umhverfi. Næst var ekið um Breið- dalssveitina, litið til bændabýlanna sem víða blasa við vegfarendum og sagt frá þróun búskapar á þessum slóð- um. Eftir fróðlega ökuferð var litið inn í „opið hús“ eldri borgara á Breiðdalsvík. Þar var m.a. spilað, föndrað, spurt og spjallað. Kafftilmur og kökur á borðum undir- strikaði gestrisni húsráðanda. Næst er ekið að Snæhvammi. Þangað er snyrtilegt heim að líta. Þar á bæ virðist austfirsk gestrisni í hávegum höfð. Húsfrú Ásta ræður hér ríkjum ásamt með bróður sín- um og syni. Eftir listrænan kvöldverð og fróðlegar samræður um fé- lagsmál, nýliðið 50 ára af- mæli Kirkjukórasambands Austurlands, atvinnuhorfur og fleira er enn ekið af stað. Nú liggur leiðin að Hótel Bláfelli. Þangað var mér boðið á síðari hluta árshátíðar Lions- klúbbanna á Suðurfjörðum. Glatt var þarna á góðra vina fundi og göngufélagar rifjuðu upp ánægjulegar samveru- stundir frá liðnu sumri. Eg lýk þessum hugleiðing- um mínum með þakklæti og bestu framtíðaróskum til fólksins í borg og byggðum, sem greiddi götu mína og gerði mér lífið létt á lands- göngu minni árið 1993. Þegar þar að kemur, og ef samfundir okkar Péturs skyldu nú ganga vel, jafnvel skokkbraut til nota í frístund- um þar efra, mætti vænta þess að fleiri héðan af Fróni fengju þar aðstöðu. Ég segi því: Sjáumst síðar. Verið þið sæl að sinni. lilalil 250 Heima er hest
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.