Heima er bezt - 01.07.1994, Side 34
og kuldahúfan komnar á sinn stað, enda svalur norðan-
frostvindur á Fróni, og hinn aldni göngugarpur segist
þess albúinn að skokka með mér spottakorn áður en leiðir
skilja.
Fjölþætt dagskrá á Breiðdalsvík
Svalur sólskinsdagur skil-
aði slíkri jökla- og fjallasýn
að seint gleymist á ferð
minni austur á bóginn til
Breiðdalsvíkur næsta dag.
Þar ók ég í hlað síðdegis að
Sólheimum 6 eftir leiðsögn
Astu Maríu Herbjörnsdóttur
húsfreyju að Snæhvammi í
Breiðdalsvík. Dóttir hennar,
Herborg Elísabet, fagnaði
gestakomunni með veglegu
kaffiboði.
Vcl má vera að veislugleð-
in hjá Elvu Báru hafi náð há-
marki þegar „afi gamli“ af-
henti henni áletraðan heið-
ursskjöld sem staðfestingu á
því að hún var yngsti þátttak-
andinn á landsgöngu minni á
ári aldraðra 1993.
Ætla má að þessi tápmikla,
unga stúlka fái fleiri viður-
kenningar vegna afreka sinna
þegar stundir líða og æviár-
um fjölgar.
Mér þótti það í frásögur
færandi þegar þrjár kynslóðir
mér áður ókunnar gengu með
mér á landsgöngunni drjúgan
spöl í átt til Breiðdalsvíkur
og um Breiðdalsvíkurbyggð- Elva Bára með
ina. verðlaunaskjöldinn.
Slíkar hetjur daganna hittir
maður ekki í öllum byggðar- Stefán, Elva Bára og
lögum. Elsti ættliðurinn, Ásta móðir hennar, Herhorg
María, lét sig ekki muna um Elísabet.
það að bæta við gönguferð um
Kambanesskriður og fylla þar
með 10 km göngutakmarkið þann daginn.
Þegar fyrsta þætti laugardagsdagskrárinnar var lokið,
tók aldursforseti heimamanna við dagskrárstjórn. Fyrst
var ekið um Breiðdalsvíkurbyggðina. Þar gaf víða að líta
falleg hús í vel hirtu umhverfi. Næst var ekið um Breið-
dalssveitina, litið til bændabýlanna sem víða blasa við
vegfarendum og sagt frá þróun búskapar á þessum slóð-
um. Eftir fróðlega ökuferð var litið inn í „opið hús“ eldri
borgara á Breiðdalsvík. Þar var m.a. spilað, föndrað,
spurt og spjallað. Kafftilmur og kökur á borðum undir-
strikaði gestrisni húsráðanda.
Næst er ekið að Snæhvammi. Þangað er snyrtilegt heim
að líta. Þar á bæ virðist austfirsk gestrisni í hávegum
höfð. Húsfrú Ásta ræður hér
ríkjum ásamt með bróður sín-
um og syni.
Eftir listrænan kvöldverð
og fróðlegar samræður um fé-
lagsmál, nýliðið 50 ára af-
mæli Kirkjukórasambands
Austurlands, atvinnuhorfur og
fleira er enn ekið af stað. Nú
liggur leiðin að Hótel Bláfelli.
Þangað var mér boðið á síðari
hluta árshátíðar Lions-
klúbbanna á Suðurfjörðum.
Glatt var þarna á góðra vina
fundi og göngufélagar rifjuðu
upp ánægjulegar samveru-
stundir frá liðnu sumri.
Eg lýk þessum hugleiðing-
um mínum með þakklæti og
bestu framtíðaróskum til
fólksins í borg og byggðum,
sem greiddi götu mína og
gerði mér lífið létt á lands-
göngu minni árið 1993.
Þegar þar að kemur, og ef
samfundir okkar Péturs
skyldu nú ganga vel, jafnvel
skokkbraut til nota í frístund-
um þar efra, mætti vænta þess að fleiri héðan af Fróni
fengju þar aðstöðu. Ég segi því: Sjáumst síðar. Verið þið
sæl að sinni. lilalil
250 Heima er hest