Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Side 23

Heima er bezt - 01.07.1994, Side 23
ina að öllu leyti. Væri gott fyrir þig að geta fylgst með þessu fólki alla leið til Hornafjarðar.“ Eg sá strax að þetta var þjóðráð. Jón tók símann og náði sambandi við hjónin og samþykktu þau að ég slægist með í ferðina, auðvitað með ráði fararstjórans. En ekki lét Jón þar við sitja heldur hringdi hann og hringdi þar til hann náði í þennan fararstjóra og hjá hon- um fékkst leyfi til þess að ég slægist með í ferðina. Þá kom babb í bátinn því það vantaði bæði hest og reiðtygi handa mér en það var fyrir góð orð Jóns sem úr því rættist. A Djúpavogi var ég svo það sem eftir var dagsins og litaðist um í kauptúninu og tók myndir. Um nótt- ina gisti ég hjá kaupfélagastjóranum sem, eins og áður segir, sýndi mér einstaka hugulsemi og hjálpsemi á allan hátt sem aldrei verður þakkað að verðleikum. Nú segi ég frá þriðja degi ferðar- innar, það er að segja frá því lagt var af stað frá Egilsstöðum. Eftir góðan nætursvefn snæddi ég úrvals morg- unverð hjá kaupfélagsstjóranum. Um klukkan átta um morguninn renndi vörubíll upp að húsinu. A palli hans voru bekkir til að sitja á og þar var mér boðið sæti. I framsæti hjá bíl- stjóranum sátu fyrrnefnd lijón, vænt- anlegir ferðafélagar. Bílstjórinn var Þorbjörn bóndi á Geithellnum í Álftafirði. Svo var lagt af stað. Vegurinn var lélegur, víða aðeins hestaslóðir og kerruvegur, mjög krókóttur og holur margar og sumar djúpar. Því ók Þor- björn rólega en mér þótti það dálítið skrýtið að þar sem voru krappar beygjur fyrir kletta og dranga, sem voru margar, var ætíð flautað áður en lagt var í beygjuna og það rækilega. Eftir um klukkustundarferð með bílnum var komið að Geithellnum en lengra varð ekki komist á bíl. Þá var þar fyrir fararstjórinn sem ætlaði að fylgja okkur áfram. Hann var með hesta og allt sem til þurfti í langa ferð. Áður en lagt var af stað frá Gcithellnum var okkur boðið upp á Efri mynd: Svínhólar í Lóni. Neðri mynd: TraÖirnar heim að hœnum á Svínhólum. taldi að í mikið væri ráðist. „Og það get ég sagt þér að skaftfellsku árnar eru ekkert lamb að leika sér við. Svo eru það allar minni árnar sem gætu tafið fyrir, og þær eru marg- ar.“ En þetta voru ekki síðustu orð Jóns í sambandi við ferðalag mitt því hann sýndi mér alveg sérstaka hugulsemi og greið- vikni sem ég gat ekki búist við af ókunnum manni. Það verð ég að segja að þarna hljóp nú heldur betur á snærið hjá mér þegar Jón sagði: „Þú ferð nú ekkert lengra í dag og gistir hérna hjá mér í nótt. Eg ætla að athuga hvort ég get ekki greitt svolítið fyrir þér í sambandi við ferð þína. Hér á Djúpavogi eru stödd hjón sem ætla að fara til Hornafjarðar á morgun og þau hafa nú þegar ráðið fararstjóra sem hefur skipulagt ferð- Heima er hest 239

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.