Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Page 26

Heima er bezt - 01.07.1994, Page 26
var beðið og var Eiríkur búinn að gera þetta klárt fyrir mig, það er með leiðina frá Höfn og vestur í Suður- sveit. En ekki lét hann þar við sitja því enn var góð stund til hádegis og þá fannst honum sjálfsagt að skrcppa með mig upp í Nesjasveit svo ég sæi betur yfir héraðið. Farið var upp að Laxá að minnsta kosti eða lengra. Eg tók mynd af Bjarnarneskirkju. Þessi stutta ferð í blíðskaparveðri og góðu skyggni veitti mér mikla ánægju. Það var mikilfengleg sjón að sjá jöklana skríða fram milli tign- arlegra fjalla. En fram skal halda ferðinni. Áður en Eiríkur fór með mig niður á bryggju til að hitta tri11ukarlinn borð- aði ég góðan hádegisverð heima hjá honum. Þegar ég hugsa um þessa fyrstu ferð mína til Hafnar í Horna- firði, minnist ég ávallt gestrisni Ei- ríks og þeirrar hjálpsemi sem hann sýndi mér, eins og glöggt kemur fram í frásögn minni hér á undan. Slík greiðvikni verður hvorki þökk- uð né goldin að verðleikum. Svo var mér skotið yfir á Mela- tanga. Þar beið bílstjórinn eftir mér eins og um var talað. Síðan var hald- ið vestur Suðurfjörur að mér fannst nokkuð langt, líklega eina fimmtán kílómetra eða meira, áður en lagt var út í vatnsflaum ánna, sem mér virtist eins og hafsjór yfir að líta. Þar voru saman komnar margar ár og veit ég varla nöfn á þeim, líklega Djúpá, Hólskíll, Hólmsá, Dalsá, Heina- bergsvötn og fleiri. Þetta var óskap- legur vatnsflaumur, og allt í sjóð- bullandi vexti. Þarna kom til kunnugleiki og lagni bílstjórans að rata og velja bestu leiðina því hvergi var mjög djúpt vatn og víða þurfti að velja vand- rataða leið. Undraðist ég mjög þekk- ingu og dugnað bílstjórans. Það mun hafa tekið rúman hálf- tíma eða kannski hátt í klukkutíma að komast yfir þetta vatnasvæði, en fast land náðist nokkru austan við Kolgrímu. Þar var numið staðar og ég tók mynd af brúnni. Það var eina brúin í allri Austur-Skaftafellssýslu sem ég fór yfir í þessari ferð. Svo var haldið að Vagnsstöðum. Þar átti heima maður sem ég kannað- ist við og langaði mig að hitta hann í þessari ferð. Það var Skarphéðinn A Reynivöllum. Gíslason rafmagnsfræðingur. Hjá honum vann ég þegar hann setti upp rafstöðina í Lundi í Öxarfirði árið 1928. Þarna hitti ég Skarphéðin, sem tók mér óskaplega vel. Stansaði ég lengi og naut góðra veitinga og meira en það því Skarphéðinn gerði það besta sem luegt var að gera fyrir Frá Breiðamerkursandi. 242 Heima er best

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.