Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.07.1994, Qupperneq 27
Ég gisti á Reynivöllum í góðu yfir- læti en áður cn lagt var af stað morg- uninn eftir, borðaði ég vel góðan ís- lenskan mat: Skyr og rjóma, smurt brauð með hangikjöti, súrmeti, slátur og fleira, því löng ferð var fram und- an. Þegar við vorum í þann veginn að leggja af stað kom húsfreyjan út með það sem hún nefndi smáræði og stakk í bakpokann hjá mér og sagði: „Þetta er betra en ekkert þegar þú ert orðinn svangur.“ Nú verður að geta þess að frá Reynivöllum var haft samband í síma við Kvísker og sagt að maður væri á vesturleið yfir Sandinn og hann bæði um ferju yfir Breiðárós og byggisl við að vera þar um eða nokkru eftir miðjan dag. Til þess að hafa daginn fyrir sér var lagt snemma af stað frá Reynivöllum. Fylgdarmaðurinn var á Willys-jeppa og gekk ferðin ágætlega þó vegar- slóðinn væri ekki upp á það besta þarna vestur að Jökulsá. Hún var í tveimur kvíslum og komu þær báðar beint undan jökulröndinni. Þar var ekkert jökullón. Prammi var við austurkvíslina og þar var ferjað yfir. A milli kvíslanna var 12 til 15 mín- útna gangur og gekk fylgdarmaður minn með mér þá leið. Svo ferjaði hann mig yfir vestari kvíslina og setti mig þar í land og þar með var hlutverki hans lokið. Hann sneri við og hélt til síns heima en ég lagði land undir fót vestur á Breiðamerk- ursand. Það má sannarlega segja að ég hafi ekki verið einn á ferð á Sandinum því skúmurinn fylgdi mér fast eftir og oft gerði hann heiftarlegar árásir á mig eins og hans er háttur, þó eink- um þegar ég fór að skoða ungana hans ófleyga, það líkaði honum víst ekki. Þarna stóð ég nokkuð vel að vígi því ég þekkti skúminn vel að norðan. Það var mikið af honum við Jökulsá í Öxarfirði, til dæmis á Skógaeyrum, og þar lærði ég að varast hættulegar árásir hans. Að öðru leyti gekk ferð- in ágætlega og þegar ég kom að Ferja á Breiðárósi. A myndinni má sjá einn hinna knnnu Kvískerjabrœðra. mig undir þessum kringumstæðum. Hann fylgdi mér á hestum alla leið að Reynivöllum. Hann fór Steina- sand, sem er styttri og betri lcið því þar eru árnar mildari heldur en í efra. Þegar að Reynivöllum kom fann Svínafell í Öræfum. hann mann sem vissi hvað þurfti til að komast vestur yfir Breiðamerkursand. Bað Skarphéðinn hann að greiða fyrir þessum kunningja sínum veslur yfir Sandinn. Þetta kom sér nú heldur bet- ur vel fyrir mig því í Suðursveit var Skarphéðinn virtur vel og tekið mark á því sem hann lagði til mála. Heima er best 243
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.