Heima er bezt - 01.07.1994, Blaðsíða 41
Sigurður
Flosason:
AÐ
FJALLA-
BAKI
Það er 19. ágúst árið 1990. Hópferðabíll frá SBS á
Selfossi, X-873, er á leið suður Sprengisand.
Farþegar eru um 30 Frakkar. Bifreiðarstjóri er
undirritaður.
Dagur er að kvöldi kominn, langur dagur frá Mývatni í
Landmannalaugar. Viðkoma var höfð í Nýjadal og
Stóruversölum, þar sem móttökur voru frábærar að venju.
Þó brá mér í brún í Nýjadal, þegar ég uppgötvaði að Sirrí
og Signý, landverðir um árabil, voru horfnar fyrirvaralaust
af vettvangi. Það er eins og eitthvað vanti í landslagið við
brottför þeirra, einhver fastur punktur öræfanna sé ekki
lengur.
Tljegar ég ek inn á tjaldstæðið í
(41^ Landmannalaugum tekur Tóta
r landvörður á móti okkur og
voru móttökurnar svo innilegar að
seinna sagði Jón Geirsson fararstjóri
mér að allir farþegarnir hefðu slegið
því föstu að hún væri dóttir mín. Síð-
an er tjaldað til tveggja nátta á lands-
ins grýttasta tjaldstæði. Það er aðeins
gróðurlausar og nokkuð stórgrýttar
áreyrar sem munu vera að mestu
framburður Jökulgilskvíslarinnar af
Torfajökulssvæðinu á liðnum öldum.
Mörg tjöld eru á tjaldstæðinu og
fjölgar sífellt. Bílar streyma að með
farþega og töldu sumir að tjöldin
fylltu hundraðið þegar leið á kvöld-
ið. Tjaldstæðið er afmarkað með
kaðli og liggur vatnsleiðsla í svörtu
plaströri með fram honum. Eldhús-
bílum er lagt norðan vegarins með
fram kaðlinum, en innan hans rísa
eldhústjöld, bæði vegna hópa sem
fylgja cldhúsbílunum og eru mest
notuð til að matast í, og eins fyrir
hópa sem elda í tjöldum. Hópferða-
bílunum er lagt sunnan vegarins und-
ir háum garði sem gerður hefur verið
til varnar ágangi Jökulgilskvíslarinn-
ar við Laugasvæðið. Handan tjald-
stæðisins rís skáli Ferðafélags Is-
lands, dökkur með bröttu risi undir
hárri brún Laugahraunsins, og austur
með hrauninu stíga upp gufur frá
laugunum. Rétt við hraunbrúnina þar
sem garðurinn kemur að henni stend-
ur grænn braggi sem notaður hefur
verið sem hesthús í fjárleitum á
haustin. Þar skammt frá stendur eld-
húsbíll frá Úlfari Jacobsen, sem er
staðsettur þar til að þjónusta hópa frá
honum, en er ekki ekið með hóp-
ferðabílunum eins og áður tíðkaðist.
Næst bragganum stendur mosagrænn
yfirbyggður vörubíll frá Þýskalandi,
merktur Daltus á hliðunum. Sýnilega
er hann innréttaður sem farþegabíll,
Heima er best 257