Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Side 55

Heima er bezt - 01.07.1994, Side 55
Framhaldssagan „ÁRNI í KLOMBRUM 9. HLUTI Jón Guðmundsson frá Beruvík: „Mér heyrist þetta vera hljóðin í Hring,“ sagði Arni. „Það heyrist mér líka,“ sagði Ein- ar, „enda er hundurinn hér hvergi sjáanlegur. Skoffínið hefur náttúrlega étið hann. Aumingja Hringur,“ taut- aði Einar. „En skyldi hann geta veinað svona hátt niðri í skoffíninu?“ sagði Árni um leið og hann kastaði af sér tré- skónum. „Hundurinn, hann Hringur. Hann sem getur veinað alls staðar, hvar sem hann er staddur. Eg held að þú ættir nú að vita það best sjálfur," sagði Einar. Þeir feðgar hlupu nú sem fætur toguðu áleiðis til Klambra. Veittist þeim það þó erfitt, því hvassviðri mik- ið var komið, sem stóð á hlið þeim en hált var á hjaminu svo hvergi markaði spor. Gáfu þeir dýrinu auga við og við. Sáu , þeir að það fór ekki eins hratt og áður og dró hvorki sundur né saman. Tvo hausana dró það nú á eftir sér en þriðji hausinn stóð sperrtur á löngum hálsi upp úr því að aftanverðu. Alltaf var það að skrækja aðra stund- ina. Þannig gekk eltingarleikurinn heim undir tún í Klömbrum. Var þá dýrið spölkorn á eftir þeim. Sáu þeir þá að hausarnir voru horfnir en það dró flygsu mikla á eftir sér. Allt í einu sáu þeir að dýrið fór í tvennt. Þeyttist annar parturinn und- an veðrinu út alla flóa en hinn partur- inn kom á fljúgandi ferð á eftir þcim. Skipaði þá Einar Árna að bíða og taka hraustlega á móti dýrinu því hér þýddu engin hlaup. En þegar dýrið kom að þeim þekktu þeir að það var Hringur og ljóslifandi. „Hringur, Hringur!“ varð þeim báðum að orði. „Hann hefur sprengt skoffínið utan af sér,“ sagði Árni. „Mikill hundur er Hringur,“ sagði Einar hátíðlega um leið og hundurinn flaug upp í fangið á honum. Aðgætti hann hundinn í krók og kring og sagði: „Kynlegt er það að Hringur, jafn stór hundur og hann er, skyldi kom- ast heill og óskaddaður ofan um eins örmjóan háls og var á skoffíninu.“ „En hálsarnir voru líka þrír, tveir fram á og einn aftur á,“ sagði Árni. „Já, og þannig verður það líka skiljanlegra að svona margir hausar og hálsar hafi getað kyngt Hring í Heima er best 271

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.