Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1994, Side 58

Heima er bezt - 01.07.1994, Side 58
hann kemur fram í hlíðina upp undan bænum á Þúfu. Var hann þá fyrir ofan miðja hlíð, en svo hagaði þar til að bærinn stóð undir hlíðinni, sem var snarbrött og með jöfnum halla heim á hlaðið á Þúfu. Sest Arni nú niður til að kasta mæðinni og til að rifja upp fyrir sér það sem hann hafði ætlað að segja við Stínu, en nú var það allt horfið úr huga hans. Tók hann þá að totta flöskuna en það kom ekki að heldur, enda var hann þá orðinn út úr drukk- inn. „Nú ég veit ekki hver fjandinn er orðinn af öllu því sem mér datt í hug í gærkvöldi,“ sagði hann gramur. Þegar hann var orðinn úrkula von- ar um að geta sagt nokkurt viðeig- andi orð, stóð hann upp og sagði: „Þótt ég verði málstirður mun henni þó sýnast ég stór og gildlegur á velli, enda skal ég nú heimsækja hana með skurki og skarkala, svo hún sjái að mikilmenni sé á ferð- inni.“ Ætlaði hann nú að leggja af stað ofan hlíðina en þá vildi svo slysalega til að hann stakkst á höfuðið í skafl- inn og vegna þess að hlíðin var brött en maðurinn ölvaður, valt hann eins og kefli með ærnum hraða ofan hlíð- ina. Nú víkur sögunni heim að Þúfu. Þar sat fólk við vinnu sína inni í bað- stofu. Var stafngluggi á henni, sem sneri út með hlíðinni. Var hár skafl spölkorn frá glugganum, sem fór lækkandi heim að gaflinum. Var skallinn lægstur við gluggann, því þar hafði hann alltaf verið mokaður niður til að fá birtu inn um gluggann. Kristín sat við gluggann og var að sauma. „Skyldi enginn koma í dag?“ sagði hún um leið og hún leit út í glugg- ann. „En hvaða ógnarferlíki er að velta hérna heim skaflinn? Eg held að það sé hærra en baðstofan. Komdu, pabbi, og sjáðu,“ kallaði hún til föð- ur síns. Sigurður kom til hennar og ætlaði að fara að sjá þessi býsn en í því syrti skyndilega í baðstofunni. Það brakaði og brast í gaflinum og öll baðstofan skalf og hristist. En hæst lét þó í glugganum, því allar rúðurn- ar flugu úr honum í þúsund molum inn á gólf. Fylgdi öllu þessu skark mikið og skarkali, eins og Arni hafði að orði komist. Allir æptu upp yfir sig af ótta en Sigurður rak báðar hendur í þelta í gegnum gluggann. Hann þurfti ekki langt að teygja sig því það sat fast í glugganum cn stór snjóhrúga hafði hrunið úr því inn á borðið. Hlupu menn til dyranna til að reyna að forða sér undan baðstofunni áður en hún félli inn. En þegar út kom sáu menn sér til mikillar undr- unar að ekki höfðu komið önnur klakahlaup úr hlíðinni en þessi mikli kökkur. Sást það af brautinni eftir hann að hann hafði tekið sig upp um miðja hlíðina og hnoðast saman á leiðinni. Settust heimamenn nú á ráðstefnu til að ræða um hvað gera skyldi við klakafjallið því öllum kom saman um það að það yrði að fara frá glugg- anum, en þaðan færi það ekki sjálft fyrr en hlánaði og þá rynni það allt inn um gluggann. „Ég er stórefinn í að Þúfa standi upp úr því flóði,“ sagði Sigurður. „En þú gleymir myrkrinu, góði,“ sagði Þórdís. „Það veitti ekki af að láta alltaf lifa Ijós í baðstofunni því það sést varla hvort heldur er dagur eða nótt.“ „Ég skil ekkert hvað hefur komið þessum snjóhnetti af stað í fyrst- unni,“ sagði vinnumaðurinn. „Ég ef- ast um að tunglið væri stærra eða erfiðara viðfangs þótt það hefði dott- ið ofan og oltið hérna að glugganum. Það hefði þó varla orsakað bæði vatn og myrkur, sem þessi skratti gerir.“ „Við verðum að fá okkur rekur til að moka þessum óþverra út í haug,“ sagði Sigurður bóndi. „Verst er að missa rúðurnar úr glugganum. Það var naumast að þessi snjókökkur átti erindi, að hlassa sér einmitt á glugg- ann til þess að mölva úr honum gler- ið.“ Var nú tekið til starfa og sögðu menn að varla hefði verið meira þrekvirki að rjúfa hauga fornkon- unga en klakakökk þennan. Unnu menn nú af kappi miklu svo svitinn draup af hverju hári þeirra en þegar þeir höl'ðu brotið allstórt skarð í hann heyrðist þeim eins og manna- mál vera innan í klakakökknum. Lögðu nú allir eyrun við og hleruðu. Jú, það var áreiðanlegt. Það mis- heyrðist ekki svo öllum. Allir gláptu forviða hver á annan. Slík undur höfðu þeir aldrei vitað fyrr á ævi sinni, því nú heyrðu þeir buldur mik- ið og þess á milli háa ropa. Fóru þeir nú að moka aftur. Var þeim mikil forvitni á að vita hvað það væri, sem gæti gefið þannig hljóð frá sér. En þegar búið var að moka miklu utan af klakakökknum og hann var farinn að grennast mjög mikið, sáu menn að hann fór að taka smákippi. Allir hættu að moka og studdust fram á rekurnar og virtu hann fyrir sér. Hreyfingarnar á kökknum urðu æ meiri og meiri, svo þrátt fyrir svit- ann tóku hárin að rísa á höfðum heimamanna við að horfa á slík fá- dæmi. „Hvað haldið þið að sé í kökknum, piltar?“ spurði loks Sigurður bóndi. „Ég veit það,“ sagði Kristín hlæj- andi. Hún brann í skinninu af for- vitni, en var þó hálfsmeyk. „Þetta er náttúrlega kolungað álft- aregg, sem hefur fokið ofan af fjalli og unginn er nú að garga innan í egginu og velta því til.“ „Ég hugsa að þetta sé eitthvað stærra og sterkara en fuglsungi,“ sagði vinnumaðurinn. „Hann verður sjálfsagt nóg máltíð fyrir okkur öll. Ég skal fara að setja upp pottinn á meðan þú ert að snúa hann úr hálsliðnum og reyta hann. En flýtið þið ykkur nú að gera gat á eggið svo ég fái að sjá skepnuna,“ sagði Kristín. 274 Heima er best

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.