Æskan - 01.11.1963, Qupperneq 58
Friðþjófur Nansen er þriðja bókin
í bókaflokknum „Frægir menn“,
ætluð unglingum 12—16 ára. Bók
um einn frægasta Norðmann, sem
uppi hefur verið. Margar ljós-
myndir úr lífi Nansens eru i bók-
inni. — Kr. 120,00.
Flestir drengir hafa einhvern tíma
iðkað knattspyrnu. Vinstri útherji
er saga um drengi, sem iðka knatt-
spyrnu, félagsskap þeirra og ævin-
týri. Bók fyrir drengi á aldrinum
10—14 ára. Kostar í bandi kr.
85,00.
ANNA BETA
OG FRIÐRIK
fBtrsrEINN OUNNAÍSSON KÍODI
sírirno
Elsa flugfreyja lifir og hrærist í
starfi sínu. Hún er ýmist í London,
París, New York eða kannski á
leið til Indlands, starf flugfreyj-
unnar er tilbreytingaríkt. Bók fyr-
ir stúlkur 12—16 ára. — Kr. 95,00.
í fyrra kom út fyrsta bókin eftir
Evi Bögenæs, það var „Jóladans-
leikurinn". Þetta er ný bók eftir
sama höfund. Anna Beta og Frið-
rik er saga um heilbrigt æskufólk.
Fyrir stúlkur 13—16 ára. — Kr.
95,00.
Stjáni, Geirj og Víöigerðisfólkiö er
nú flutt til Ameríku og strákarn-
ir komast í margvísleg ævintýri.
Við skulum halda á skaga er
framhald bókarinnar „Bömin frá
Víðigerði". Fyrir drengi 10—13 ára.
— Kr. 85,00.
Lifli Keykur er saga um börn og
hesta, sem Vilbergur Júlíusson
skólastjóri hefur þýtt og endur-
ragt. Falleg bók að efni og útliti.
Fjölmargar fallegar myndir eru í
bókinni. Fyrir drengi og stúlkur.
— Kr. 55,00.
Skólasystur er ný og sjálfstæð bók
eftir þýzku skáldkonima Marga-
rethe Haller, höfund bókanna
„Fríða fjörkálfur", „Dísa Dóra“ og
„Helga og vinkonur hennar“. Bók
fyrir stúlkur á aldrinum 10—13
ára. — Kr. 75,00.
Erna er einnig ný og sjálfstæð
bók eftir Margarethe Haller. Þetta
er skólasaga um heilbrigðar ogtáp-
miklar stúlkur, skrifuð á léttu
máli. Guðrún Guðmundsdóttir
þýddi. Fyrir stúlkur 9—12 ára. —
Kr. 75,00.
Börnin í Engidal er ný bók eftir
Jóhönnu Spyri, höfund HEIÐU-
bókanna, en fáar barna- og ung-
lingabækur hafa selzt jafnmikið
og HEIÐU-bækurnar. Börnin í
Engidal er falleg bók að efni. —
Kostar kr. 85,00.
Amma segðu mér sögu er barna-
bók með stuttum sögum fyrir
drengi og stúlkur á aldrinum 6—
10 ára. Vilbergur Júlíusson skóla-
stjóri valdi sögurnar, sem eru alls
13, skreyttar fjölmörgum teikn-
ingum. — Kr. 68,00.
Nú eru útkomnar tvær nýjar bæk-
ur um Grím grallara, þær heita
Áfram Grímur grallari og Grímur
og smyglararnir. Margar teikning-
ar eru í þessum bókiun, sem eru
fjörlega ritaðar. Hvor bók kostar
kr. 78,00.
SETBERG
FREYJUGÖTU 14
SÍMI 17667