Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1972, Síða 34

Æskan - 01.01.1972, Síða 34
William Harvey (1578-1657) — Hvers vegna eru störf hans talin vera upphaf sóknar vísindanna inn í heim læknisfræðinnar? tarfi vísindamanna og leynilögreglumanna svip- W ar að ýmsu leyti saman. Báðir aðilar vinna að því að leysa vandamál og uppgötva leynd- armál. Þeir verða að byrja á því að finna sér grundvallarpunkta eða nokkurs konar lykil, sem þeir geti notað til þess að ryðja sér braut svo langt inn i vandamálið, að hægt sé að mynda sér tilgátu. Siðan leita þeir, setja saman og leggja fram spurningar, þar til þeir hafa náð svo langt, að tilgátan stendur heima, hægt er að sanna hana og leggja fram sem staðreynd. Dr. William Harvey var, ef svo mætti segja, læknisfræði- legur leynilögreglumaður. Viðfangsefni það, sem dró að sér huga hans; var leyndardómur blóðrásarinnar um likama mannsins. Um þrjátíu ára skeið elti hann hverja ábendingu, sem gat gefið einhverjar upplýsingar, lagði spurningar fyr- ir sjálfan sig, og reyndi með tilraunum að komast að stað- reyndum. Loks er hann var fullviss um árangur sinn skýrði hann opinberlega frá niðurstöðum rannsókna sinna. Árið 1593 hóf hann nám við háskólann í Cambridge, þá aðeins 15 ára að aldri. Fljótlega varð líffærafræðin ein eftirlætisnámsgrein hans, kenningarnar um byggingu og gerð mannslíkamans. Sérstakan áhuga hans vöktu slagæð- arnar og háræðarnar, sem blóðið rennur um. Á þessum tíma var litið vitað um blóðið og rennsli þess um likamann. Margir álitu, að það myndaðist í lifrinni, og aðrir, að það kæmi frá maganum. Frægur læknir hélt þvi fram, að tvær tegundir væru til af blóði: önnuc rynni fram og aftur um stóru slagæðarnar, en hin um veigaminni æð- arnar, bláæðarnar. Flestir kennarar í líffærafræði túlkuðu hver um sig sína eigin skoðun um þetta. Harvey iauk öllum prófum í Cambridge með mikilli prýði, en hann var ekki ánægður með það, sem hann hafði lært. Hver af öllum kenningunum um hreyfingar blóðsins var rétt, og hverjar voru rangar? Hann gat ekki ráðið það við sig, en hann hafði fundið þarna viðfangsefni, sem hann átti eftir að vinna að árum saman. Hann vildi leysa leyndardóminn um hreyfingar blóðsins um líkamann. Hann fór til italíu til þess að stunda þar læknisfræðinám við háskólann í Padúa. Á þeim tima kenndi þar stjörnufræði hinn mikilhæfi Galíleo Galilei, og Harvey var svo heppinn að fá þar að kennara annan mikilhæfan vísindamann, skurðlækninn Fabricius, sem kenndi liffærafræði. Hann hafði þá fyrir skömmu gert þá uppgötvun, að i bláæðunum væru iitlar dyr eða smá- lokur. Svo langt var Fabricius kominn í rannsóknum sínum. William Harvey sá í þessari uppgötvun lykil, sem gæti opnað honum dyr að víðtækari uppgötvunum. Hann ákvað Úr líffærafræðikennslustofu Cambridgeháskóla í lok 16. aldar. 32

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.