Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1972, Page 36

Æskan - 01.01.1972, Page 36
FLUGFÉLAG ÍSLANDS REYKJALUNDUR ÆSKAN am Eins og lesendum Æskunnar er kunnugt hefur blaðið í samvinnu við Flugfélag íslands efnt til verðlauna- samkeppni undanfarin 12 ár og á hverju ári hafa heppnir vinnendur farið ævintýraferðir til útlanda með Flugfélaginu. Nú efna Flugfélag íslands, Reykjalundur, Æskan og Lego-verksmiðjurnar til verðlaunasam- keppni, þar sem fyrstu verðlaun verða ferð til Dan- merkur og heimsókn og dvöl í Legolandi fyrir tvö börn. Auk þess mörg aukaverðlaun. Flogið verður til Kaupmannahafnar með þotu Flugfélags íslands og frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn með einkaþotu Lego-verksmiðjanna. í Legolandi dvelja börnin og fylgdarlið þeirra í 2—3 daga. Að því loknu fljúga börnin til Kaupmannahafnar og fara m. a. í Tivolí. Ritstjóri Æskunnar og blaðafulltrúi Flugfélags íslands munu fylgja börnunum í þessari ævintýraferð. Svona bæ fá þeir einnig, sem hljóta fyrstu og önnur verðlaun. Enda þótt þú kannlzt vel við Legokubbana, er ekki vlst að þú vltir hvað Legoland er. Legoland? Ja, kannski áttu þitt eigið Legoland svlpað og sést hér á myndinni fyrir ofan. En hlð raunverulega Legoland er í Danmörku, I bænum Billund á Jótlandi, þar sem Lego-verksmiðjurnar eru. Þar er búið að skapa slíkan ævlntýraheim úr tómum Legokubbum, að englnn staður I Danmörku, nema sjálft Tivolí, dregur nú til sín flelri ferðamenn á ári hverju. Og börnin sem vinna 1. verðlaun missa ekki heldur af Tivoli. Þau heimsækja þann fræga og fagra skemmtigarð áður en þau fljúga aftur heim með Flugfélagi islands.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.