Æskan - 01.11.1979, Qupperneq 3
11.-12. tbl.
80. árg.
Ritstjóri: GRÍMUR ENGILBERTS, ritstjórn og skrlfstola: Laugavegl 56, sími 10248, helmasíml 1204Z. Framkvæmdastjóri: KRISTJÁN
GUÐMUNDSSON. heimasíml 23230. Afgreiöslumaöur: SIGURÐUR KÁRI JÓHANNSSON, helmasími 18464. Afgreiösla: Laugavegi 56,
símí 17336. — Árgangurlnn kostar kr. 6.000.-. Gjalddagl er 1. apríl. — Utanáskrlft: ÆSKAN, pósthóll 14, Reykjavík. Póstgíró 14014.
Útgetandl: Stórstúka Islands. — Prentsmlðjan Oddl hl.
Desember
1979
FYRSTA JÓLAGJÖFIN
F
^inu sinni endur fyrir löngu bjó ung kona í fjarlægu
landi, sem hét Gyðingaland. Hún hét María. Þorpið
hennar — Nazaret — var uppi í fjallshlíð; þar átti hún
heima í litlu hvítu húsi með flötu þaki.
María hafði nóg að gera allan daginn. Hún þurfti að
mala korn og baka brauð og annast litla heimilið sitt, og
hún varö að sækja vatn út í brunninn. Allir íbúar þcrpsins
fengu vatn út sama brunni. Þar hitti María aðrar konur,
sem einnig voru að sækja vatn. Þá töluðu þær margt
saman og sögðu nýjustu fréttir. Stundum ræddu þær um
það, að eitt sinn haíói Guð lofað að senda barn í heiminn,
er skyldi verða konungur, flytja mönnunum frið og gleði
og kenna þeim að verða góðir og hamingjusamir menn.
,,Hvenær skyldi konungurinn fæðast?" hugsaði María,
.,og hvar skyldi Guð láta hann fæðast?"
Skammt frá Maríu bjó unnustinn hennar, hann Jósef
trésmiöur. Bráðum ætluðu þau að láta gifta sig og stofna
heimili. Þá yrði gaman að lifa.
Einu sinni, þegar María var ein heima, birti allt í einu af
skæru Ijósi í litlu stofunni hennar. Og þegar hún leit upp,
sá hún bjartan engil standa mitt í Ijósadýrðinni.
,,Heil vert þú, María," sagði engillinn, ,,Drottinn er með
Þér. Þú skalt eignast son, og þú skalt láta hann heita
Jesú. Hann mun verða mikill. Hann verður kallaður sonur
hins hæsta, konungur, sem mun flytja fögnuð á jörð."
,,Sjá, ég er ambátt Drottins, verði mér eftir orðum þín-
um."
Þá yfirgaf engillinn hana.
1979 - ÁR BARNSINS OG ÁR ÆSKUNNAR
1