Valsblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 25

Valsblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 25
eignast trausta félaga sem mér eru mikils virði. Valsvörnin fræga var sérstök, og þá bæði sem menn og leikmenn. Hermann, Siggi Ola, Frímann og Grímar, voru engum líkir. Þá voru þarna á tímabili menn með óvanalega leikni, eins og Ellert Sölvason (Lolli), Magnús Bergsteinsson og svo Albert Guðmundsson.” Er einhver ástæða /yrir því að það koma upp á þessum árum leikmenn með mikla leikni? ,,Já. Arin 1935 og’38 komu hingað til lands þýsk úrvalslið, með toppmenn úr landsliðinu. Við höfðum aldrei séð slíka leikni, enda ekki komið sjónvarp eða myndbönd. Þetta hvatti okkur strákana, Geir Guðmundsson, Anton Erlendsson, Guðbrand Jakobsson og fleiri til dáða, við reyndum að sjálfsögðu að líkja eftir því sem stjörnurnar gerðu og lifðum okkur síst minna inn í þetta en strákar nútímans, sem dá Maradona, Platini eða aðra.” Af eftirminnilegum atburðum standa utanferðirnar upp úr að sögn Snorra. Árið 1939 fór hópur úr Val og Víking til Þýska- lands og lék tvo leiki. Var það skemmtileg upplifun fyrir 17 ára pilt af Hverfisgötunni. Og 1946 fór Snorri með íslensku úrvals- liði til London, þar sem leikið var gegn enskum áhugamönnum. Talið berst að aðstöðunni þá og nú, og ég bið Snorra um að gera samanburð á getu manna og öðru. Hvað hefur breyst? ,, Það er ólíku saman að jafna, allt annar aðbúnaður og varla að um sé að ræða sama hlutinn. Fótboltaskórnir hafa breyst verulega, að maður minnist ekki á vallar- aðstæður, en við náðum því varla að leika á grasi. Þrátt fyrir þetta var leikni margra manna ekkert minni. Eg efast um að ís- lenskir knattspyrnumenn hafi verið leikn- ari en þeir þrír sem ég minntist á áðan, Lolli, Albert og Maggi Bergsteins.” Hann er hógvær innherjinn gamli, sem svo lengi lék við hlið Lolla á vinstri vallar- helmingnum, og er ekki að minnast á eigið ágæti: En minnugur greina um kappann í eldri Valsblöðum, hef ég sam- band við aðila sem voru samtíma Snorra í Val, og það er ekki neinum blöðum um það að fletta: Maðurinn var í sérflokki á sínum tíma, dýrkaður af yngri piltunum vegna frábærrar tækni og skemmtilegra takta á leikvelli. En Snorri lék ekki bara fyrir sjálfan sig, þótt flínkur væri, heldur fyrir liðið. Mönnum ber saman um að Snorri Jónsson hafi verið eitthvað sérstakt, og það kemur glampi í augu eldri Valsmanna, þegar þeir rifja upp gömlu gullárin. íslenska landsliðið í knattspymu sem fór í keppnisferð til Engiands árið 1946. Aftasta röð frá vinstri: Hafsteinn Guðmundsson, Anton Sigurðsson, Sveinn Helgason, Anton Erlendsson, ónefndur, Snorri Jónsson, Kristján Olafsson, Sæmundur Gíslason, Sig- urður Ölafsson og Lilli rauði í KR. Miðröð frá vinstri: Einar Pálsson, Sammy Steel enskur þjálfari, Sigurjón Jónsson, Pétur Eggerts, Björgvin Schram, Ellert Sölvason (kötturinn), Gunnlaugur Lárusson, Jón Jónsson á 11. Fremsta röð frá vinstri: Ólafur Hannesson, Hörður Óskarsson, Valtýr Guðmundsson, Birgir Guðjónsson og Þórhallur Einarsson. A myndina vantar Albert Guðmundsson og Hermann Hermannsson. fylgdust með honum leika. En ferillinn var rofinn á óskemmtilegan hátt vorið 1943, þegar Snorri, þá aðeins tuttugu og eins árs, meiddist illa við störf hjá Hitaveitunni. Hann fótbrotnaði og varð að hætta í þrjú ár. Þótt hann byrjaði aftur og léki í 1-2 ár, var greinilegt að meiðslin háðu honum og hann náði eðlilega ekki að sýna fyrri snilli. Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir mann, sem talinn er einn mesti snillingur sem fram hefur komið á íslenska knattspyrnu- sviðinu. Nú, Snorri leggur skóna endanlega á hilluna frægu 1948, fer til Svíþjóðar í framhaldsnám og þegar hann kemur heim nokkrum árum síðar tekur hann sæti í Fulltrúaráði Vals og þar starfar hann enn, í kyrrþey, er alltaf sami Valsmað- urinn. Hann er spurður um eftirminnilega leikmenn úr þeim sterka hópi sem hann lék með, íslandsmeistarar 1940 og 1942, þegar öll mót unnust. Reyndar unnust einnig öll mót í handbolta það árið, en Snorri var þar í fararbroddi eins og í knatt- spyrnunni, þar sem hann átti engan sinn líka. ,,Það er varla sanngjarnt að nefna einn öðrum fremur, því allt voru þetta góðir leikmenn og afbragðs félagar. vegna íþróttanna hef ég kynnst mörgu skemmti- legu, sem ég hefði ekki viljað missa af, og Snorri Jónsson þótti einn leiknasti knattspyrnumaður sem komið hafði fram á sjonarsviðið. Meiðsli bundu endi á stuttan knattspyrnuferil hans. VALSBLAÐIÐ 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.