Valsblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 43

Valsblaðið - 01.05.1986, Blaðsíða 43
Lékum með hjartanu Það var eins og við manninn mælt — bang, bang, bang — staðan orðin 3-0. Já, við vorum komnir í ítalska boltann þar sem taktíkin er að bakka verulega, leyfa andstæðingunum að sækja og setja svo á fullt þegar þeir missa boltann. Þetta tókst fullkomlega hjá Juventus því flest þeirra mörk komu eftir að við glötuðum bolt- anum á þeirra vallarhelmingi og þá komu þeir á 130 km hraða og skoruðu. Leik- urinn endaði eins og allir vita með sjö marka tapi Valsmanna en engu að síður var það mál manna að Valur hafi leikið sinn besta leik á tímabilinu. Jú, við fengum tíma — okkur var leyft að sækja fram að þeirra vallarhelmingi, boltinn gekk vel og allir höfðu gaman af því sem þeir voru að gera. Ef við höfðum hugsað um að liggja í vörn allan leikinn og kýla fram hefði markamunurinn aldrei orðið nema 3-4 mörk. En því að leika eins og kálfar í leik sem er stærsta stundin á ferlinum? Við tókum þá ákvörðun að leika með hjartanu og hafa gaman af hlutunum í stað þess að „sleppa” með tvö þrjú mörk. Því fór sem fór og leikurinn verður okkur Valsmönnum lengi í minnum hafður — þrátt fyrir að einstaka manni sem ekki sá leikinn finnist að við hefðum átt að liggja í vörn. Satt best að segja söknuðum við Guðna úr vörninni en hann var í leikbanni og munaði um minna. Risið úrsætum og hrópað ,,VALUR" Orð dómarans sem dæmdi leikinn verða líka lengi í minnum höfð því hann sagðist aldrei hafa dæmt leik þar sem annað liðið — það lakara (Valur) hélt áfram að spila frábæran fótbolta þrátt fyrir að fá á sig öll þessi mörk. Hans reynsla var sú að lið sem fær á sig svona mörg mörk gerist gróft og reyni að sparka í andstæð- ingana. Það kom okkur því ekki á óvart í leikslok þegar áhorfendur risu úr sætum sínum og hrópuðu „VALUR” og klöpp- uðu okkur lof í lófa fyrir góðan leik. Þegar iitið er til baka — yfir þau marktækifæri sem við fengum í leiknum hefði marka- talan 5-2 ekki verið ósanngjörn. En svona er fótboltinn, það eru ekki alltaf jólin. Að leik loknum skiptust á skyrtum og fleiri minjagripum og verða þeir líkast til vandlega geymdir í skápnum við hliðina á hinum skyrtunum og moldinni undan skóm Platini!!! ltalíuferðin var ánægjuleg í alla staði, móttökurnar frábærar og litið á Val sem litla bróður Juventus. Hvort sá litli nær þeim stóra einhverntíma í þroska skal eru peningar þar ekkert vandamál. Á æf- ingum leikmanna safnast jafnan fjöldi að- dáenda sem vilja líta stjörnurnar augum og fá eiginhandaráritanir. Satt best að segja fengum við Valsmenn að kynnast frægðinni eilítið og fengum við töluverða athygli. Safnarar vildu eiginhandaráritanir og ungar stúlkur vildu láta mynda sig með íslensku glókollunum — Himmi Sighvats beið í rútunnu á meðan!!! Þrátt fyrir að framundan var leikur á útivelli gegn besta félagsliði heims að viðstöddum rúmlega 20 þúsund áhorf- endum var engan kvíða að sjá á leik- mönnum Vals. Alla hlakkaði til að leika gegn stjörnunum og voru menn að takast á við mest spennandi verkefni á ferlinum. Þegar leikurinn hófst var búið að rigna smávegis og var skemmtilegra að spila fyrir bragðið. Eftir tæplega 20 mín. leik var staðan enn jöfn og hugsaði ég með mér hvort þessir karlar væru virkilega ekki betri en þetta. miftc því með sama mannskap og þjálfara getur leiðin ekki legið nema á einn veg —upp á við. Skotheld fararstjóm Að lokinni uppskeruhátíð knattspyrnu- manna í 1. deild sem haldin var í Broad- way, fengum við nokkurra tíma svefn en síðan var haldið til Italíu á vit ævintýranna. Ferðin var að öllu leyti frábærlega skipu- lögð og á fararstjórnin heiður skilinn fyrir góðan undirbúning. í fararstjórninni voru þeir Eggert Magnússon formaður, Grímur Sæmundsen, Svanbjörn Thoroddsen og Helgi Magnússon. í Torino fengum við fljótt smjörþefinn af stórveldinu Juventus og gerðum við okkur þá grein fyrir hversu gífurlegur munur er á atvinnumennsku og áhuga- mennsku. Ekki aðeins eru atvinnumenn- irnir betri knattspyrnumenn heldur er lið sem Juventus rekið sem stórt fyrirtæki og VALSBLAÐIÐ 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.