Valsblaðið - 01.05.1986, Page 27
Breytingar á lögum Vals
Á haustmánuSum 1985 skipaSi aSal-
stjórn Vals þriggja manna nefnd til aS
endurskoSa lög félagsins. í nefndinni voru
Bergur GuSnason, Bjarni Bjarnason og
SigurSur Lárus Hólm. Störf nefndarinnar
beindust einkum í þann farveg hvernig
efla mætti Val og þá einkum félagslega.
Innan félagsins var í gangi umræSa þar
sem sett var spurningamerki við þaS hvort
deildarskiptingin væri búin aS renna sitt
skeiS á enda og væri hugsanlega drag-
bítur á starfsemina í Val.
Á aSalfundi 15. apríl 1986 voru lagSar
fram tillögur aS lagabreytingu, sem í eSli
sínu voru all róttækar. Tillögurnar gerSu
ráS fyrir því aS áhrif aSalstjórnar yrSu
aukin og að deildir og deildarstjórnir yrðu
lagðar niSur en í stað kæmu nefndir
hverrar íþróttagreinar sem aðallega var
ætlað það hlutverk að sinna íþrótta- og
félagshliðinni á hverri íþróttagrein. Og
stuðla þannig að eflingu félagsins í eina
heild. Gert var ráð fyrir að fjárhagsleg
ábyrgð færðist meira yfir á hendur aðal-
stjórnar, sem myndi starfa eftir fjárhags-
áætlun aem samþykkt væri á aðalfundi
félagsins.
Á aðalfundinum komu fram mjög
skiptar skoðanir um tillögurnar. Þótti
mörgum að þarna væri verið að stíga of
stórt skref í einu og margir vildu meina að
deildarskiptingin ætti enn fullan rétt á sér.
Lauk umræðunni þannig að aðalfundur
kaus nefnd sem sæti áttu í formenn deilda
ásamt formanni félagsins til að fara yfir
tillögurnar og samræma ólík sjónarmið.
Síðan var aðalfundi frestað.
Framhaldsaðalfundur var síðan hald-
inn 21. ágúst 1986 þar sem samþykktar
voru mótatkvæðalaust tillögur formanna-
nefndarinnar um breytingar á lögum fé-
lagsins. Breytingarnar felast einkum í eftir-
töldum atriðum.
1. Menn eru félagar í Knattspyrnufé-
laginu Val en ekki í einstökum deildum
þess.
2. Aðalfundur skal opin öllum skuldlaus-
um félagsmönnum 16 ára og eldri.
3. Á aðalfundi félagsins skal lögð fram
fjárhagsáætlun þess til samþykktar.
Gert er ráð fyrir að fjárhagsáætlun feli
aðskilið fjárhagsáætlanir deilda.
4. Á aðalfundi félagsins verði kosnir for-
menn einstakra íþróttadeilda. For-
menn knattspyrnu-, handknattleiks-
og körfuknattleiksdeilda verði sjálf-
kjörnir í aðalstjórn.
5. Aðalstjórn skipi 9 menn.
6. Deildarfundir, sem koma í stað aðal-
funda deilda, verði auglýstir á aðal-
fundi félagsins og verði haldnir eigi
síðar en 14 dögum eftir aðalfund fé-
lagsins. Á deildarfundum eru kosnir
aðrir stjórnarmenn deilda en for-
maður.
Það er almennt álitíð að sú umræða
sem fram fór um lög félagsins og stöðu
þess almennt hafi verið til góðs og er
vonandi að svo verði einnig um þær
breytingar sem gerðar voru á lögunum.
Nokkur orð
um stóðadeildina
Eins og Valsmenn rekur minni til var
skíðaskáli skíðadeildar Vals endurbyggð-
ur á árunum 1980-1982. Var hann form-
lega opnaður í mars 1982. Skíðaskálinn
hafði þá um nokkurra ára skeið verið í
megnustu niðurníðslu og nánast talið að
ekki væri viðlit að bjarga honum. Síðan
skíðaskálinn var opnaður aftur má segja
að hann hafi verið í stöðugri notkun. Mikil
ásókn hefur verið í að fá skálann leigðan
og þá jafnt yfir sumartímann eins og á
veturna. Síðustu tvö árin hafa verið mjög
snjólétt í nágrenni skálans og hamlaði það
nokkuð skíðaiðkunum. Barnalyfta sú sem
skíðadeildin er búin að koma sér upp
hefur af þeim sökum verið tæplega not-
hæf. Nokkuð var um afpantanir á sl. vetri
vegna snjóleysis.
Bygging skíðalyftu hefur verið á dag-
skrá og var nokkuð búið að þoka þeim
málum áleiðis í kerfinu. En strandaði á því
hve feykilega dýrt það fyrirtæki er.Einnig
lendir fjármagnsútvegun og fyrirgreiðsla
að mestu á fárra herðar og hefur það sett
málið í biðstöðu. Á árinu 1984 var unnin
töluverð jarðvegsvinna við lagfæringu á
skíðabrekku.
Félagsmál hafa setið á hakanum hjá
skíðadeildinni til þessa en nú í haust hafa
nokkrir ungir og hressir krakkar sýnt
mikinn áhuga á að starfa að skíðamálum
fyrir deildina og jafnvel að keppa á
skíðum fyrir félagið. Einnig hefur komið tíl
tals að vera með byrjendakennslu nk.
vetur og nota þar með barnalyftu deild-
arinnar. Vonandi verður næsti vetur bæði
snjóþungur, langur og strangur.
Með skíðakueðju.
VALSBLAÐIÐ 27