Valsblaðið - 01.05.1986, Page 35
OLD-BOYS PUNKTAR
íslandsmót eldri flokks 1986, fór ekki á
þann veg sem viS Valsmenn ætluðum.
Við gátum ekki varið titil okkar frá fyrra ári
vegna eitilgrimmra Akurnesinga og unnu
þeir íslandsbikarinn þetta árið en Valur
varð í fjórða sæti. Það góða við keppnina í
þessum flokki er, að á þessu viðkvæma
aldursskeiði 30-50 ára er svotil eingöngu
spilað á grasi, enda flestir keppenda
ennþá fisléttir og frískir. Eldri flokkur Vals
fékk þó ekki að spila einn einasta leik á
grasi á sínum heimavelli og sætti það
nokkurrar furðu. Þarna eru menn sem
flestir hafa alið allan sinn knattspyrnuferil
hjá Val og sumir með fleiri hundruð leiki á
bak við sig fyrir félagið. Það ætti því að
vera sjálfsögð umbun á efri árum að fá
svona einn grasleik yfir sumarið. Þetta er
sett fram til umhugsunar til yfirstjórnar
félagsins.
Á nýafstaðinni uppskeruhátíð Vals var
úthlutað verðlaunum að vanda til flokka
og einstaklinga sem til þeirra höfðu unnið
að mati þjálfara og umsjónarmanna.
I eldru flokki var að mati undirritaðs og
nokkurra valinna félaga í flokknum óum-
deilanlegt, að Hermann Gunnarsson hafi
átt sitt besta sumar í langan tíma end aldrei
æft eins stíft og mætti hann að sjálfsögðu í
alla leiki sumarsins. Var hann því valinn
Leikmaður Old Boys 1986.
Efnilegastur okkar eldri drengjanna var
valinn Alexander Jóhannsson, maður
sem er með ódrepandi áhuga og enn á
uppleið. Báðir þessir aðilar gátu ekki verið
á uppskeruhátíðinni og voru því verð-
launin afhent þeim í matarhófi í Veitinga-
húsinu Torfan nokkru síðar.
Verslunin Tékk-Kristall hefur gefið
verðlaunin til þessa flokks og á meðfylgj-
andi myndum sést Skúli Jóhannesson
eigandi Tékk-Kristals afhenda þeim verð-
launin. Þá má geta þess að silkiborða
þann sem Hermann hefur um hálsinn gaf
Haildór Einarsson (Henson).
Skúli Jóhannesson afhendir Hermanni Gunnarssyni verðlaunin sem viðurkenning fyrir
að vera besti leikmaður Old Boys 1986.
Alexander Jóhannesson var valinn efnilegasti leikmaður „gamlingjanna” 1986.
Valskveðjur,
HilmirElíson.
VALSBLAÐIÐ 35