Valsblaðið - 01.05.1986, Page 57
4. flokkur Vals, B-lið varð í öðru sæti á Miðsumarsmóti B-Iiða 1986.
Tveir efnilegir leikmenn 4. flokks, Gunnar Gunnarsson og Sveinn Sigfinnsson.
leikmanna sem margir hverjir virtust vera
á sífelldum ferðalögum. Má t.d. nefna að
nokkrir helstu máttarstólpar liðsins
brugðu sér á miðju sumri til Ítalíu, til að
taka þátt í handboltamóti. Ekki eru allir á
eitt sáttir um það hvort handknattleiks-
deild eigi að vera að standa fyrir keppnis-
ferðum sem þessum á miðju keppnistíma-
bili fótboltans, fremuren ef knattspyrnulið
væru send til keppni á miðju keppnistíma-
bili handboltans.
Þjálfari 4. flokks var Sævar Tryggva-
son.
Þriðji flokkur var kannski helsta skraut-
fjöður yngri flokkanna. Þeim tókst að vera
í baráttu um efstu sæti f öllum mótum sem
þeir tóku þátt í en á endanum unnu þeir
ekki neina titla. Þeir urðu í fimmta sæti á
Islandsmótinu og í öðru sæti á Haustmóti
og Reykjavíkurmóti. B-liðið náði öðru
sæti í Reykjavíkurmóti og fyrsta sæti í
Haustmóti.
Þá var farið í keppnisferð til Danmerkur
og tekið þátt í Dana Cup sem er eitt
stærsta unglingamót sem haldið er í heim-
inum árlega. Til marks um það má nefna
að í þessum aidursflokki sem við sendum
til keppni, voru yfir 180 lið sem hófu
keppni. Strákarnir okkar féllu út í sextán
liða úrslitum, eftir vítaspyrnukeppni. Þeir
kepptu við brasilískt lið og ég held að
óhætt sé að segja að það hafi verið einn
mest spennandi knattspyrnuleikur sem ég
hef séð um ævina. Okkur strákar komust í
2-0 í fyrri hálfleik og Brassarnir náðu ekki
að jafna leikinn fyrr en um það bil sem
venjulegum leiktíma var að ljúka. Valur
hefði svo sannarlega átt skilið að vinna
þennan leik, vegna þess að nettir Brass-
arnir áttu aldrei almennilegt svar við kraft-
miklum og leikglöðum íslendingunum.
Þessa má svo geta að þetta lið frá Brasilíu
vann mótið nokkuð auðveldlega.
Vonandi verður þessi ferð drengjunum
jafn eftirminnileg og hún hefur orðið og
verður mér áreiðanlega um aldur og ævi.
Framkoma þeirra var prúðmannleg og
umfram allt skemmtileg. Þeir voru sjálfum
sér og féiaginu til sóma.
Þjálfari þriðja flokks var Kristján
Þorvaldz.
Þá er komið að öðrum flokki, sem átti
raunar fremur döpru gengi að fagna.
Sigur vannst í Valsmótinu en um önnur
mót er víst best að hafa sem fæst orð.
Skemmst er frá því að segja að í Islands-
móti varð fall í B-riðil óumflýjanlegt. Það
er þó engin ástæða til að leggja árar í bát
þótt illa hafi gengið f sumar, því í þessum
flokki eru efnilegir drengir og þeir fá til liðs
við sig góða einstaklinga sem nú ganga
upp úr þriðja flokki.Það er því bara að
snúa vörn í sókn og ég er sannfærður um
Þessir léku með 5. flokki síðastliðið
sumar og stóðu sig vel. Júlíus Axelsson
til vinstri og Friðrik Jónsson.
VALSBLAÐIÐ 57