Valsblaðið - 01.05.1986, Side 59
HLIÐARENDI
— annað heimili Valsmanna
É * a.n - i 2* %
• UH - r -w » — ' ■ • » r -»r -«* 4 l
Upphafið
Á þessu ári, eða nánar til tekið 11. maí,
eru 75 ár frá því að okkar ágæta félag,
Knattspyrnufélagið Valur var stofnað.
Við siík tímamót er rétt og skylt að horfa
yfir farinn veg og reyna að gera sér grein
fyrir því hvað framtíðin ber í skauti sínu.
Það var um síðustu aldamót sem mikill
knattspyrnuáhugi skall hér yfir bæinn og
hreif með sér unga drengi um þessar
mundir. Þessi knattspyrnuáhugi fór ekki
fram hjá unglingadeildinni í KFUM, sem
varð til þess að þeir stofnuðu Knatt
spyrnufélagið Val.
Vallarframkvæmdir
Það gefur auga leið að mörg verkefni
biðu þessara ungu og áhugasömu pilta
við uppbyggingu félagsins, hvað varðaði
félagsstörf, skipulag æfinga, útvegun
aðstöðu til knattspyrnuiðkunar o.fl. o.fl.
Til marks um áhugann má geta þess, að
þrem mánuðum eftir stofnun félagsins var
tilbúinn knattspyrnuvöllur á Melunum
sem félagsmenn höfðu rutt. Ekki höfðu
hinir ungu Valsmenn notið hins nýja
svæðis nema tæp tvö ár þegar þeir urðu
að þoka þaðan fyrir mannvirki, því fyrsta
og síðasta sinnar tegundar hér á landi, en
það var járnbraut sem notuð var við
byggingu Reykjavíkurhafnar. Valsmenn
voru ekki á því að gefast upp við að hafa
sitt eigið athafnasvæði og hófust handa á
ný, en gæfan var ekki hliðholl Vals-
mönnum við vallargerðina. Þrisvar sinn-
um var hafist handa með æfingasvæði og
gerðir vellir en ávallt urðu þeir að víkja
fyrir mannvirkjum sem staðsett voru á
vallarsvæði félagsins og sá síðasti þeirra
var tekinn undir Reykjavíkurflugvöll á
fyrstu árum stríðsins.
Hér að framan hefur í stuttu máli verið
getið um vallarmál Vals fyrstu tæplega 30
árin í sögu félagsins. Það gefur auga leið
að oft hefur félagsmönnum verið vandi á
höndum í vallarmálum og vafalaust hefur
þetta mál verið mikið rætt á fundum og
meðal Valsmanna við ýmis tækifæri, en
ekki verður séð af gömlum heimildum að
um neina uppgjöf hafi verið að ræða.
Enda þótt vitað sé að frá stofnun félagsins
og til þess tima sem hér um ræðir, höfðu
skipst á skin og skúrir í starfsemi félagsins.
Hlíðarendi keyptur
Um þessar mundir kom fram sú hug-
mynd af hálfu bæjaryfirvalda að svæðið
suðvestan við Öskjuhlíðina yrði skipulagt
sem iþróttahverfi. Var það ætlun bæjarins
að ræsa fram landið og afhenda það síðan
félögunum til frekari framkvæmda en úr
þessu varð þó ekki því síðar kom fram sú
skoðun að heppilegra væri að dreifa
iþróttasvæðunum um bæinn. Þetta varð
meðal annars til þess að Valur fór enn á ný
að grennslast eftir landi fyrir starfsemi
sína.
I 50 ára afmælisblaði Vals er kaup-
unum á Hlíðarenda gerð góð skil, en þar
sem langt er um liðið síðan þessi merku
tímamót í sögu Vals áttu sér stað og þau lítt
kunn félagsmönnum í dag, þykir rétt að
birta eftirfarandi kafla úr 50 ára blaðinu:
,,Á stjórnarfundi 3. apríl 1939
skýrir formaður félagsins Ólafur
Sigurðsson frá því að boðist hefði
land til kaups fyrir knattspyrnuvelli,
fyrir Val, grasvelli. Land þetta er
Hlíðarendi við Öskjuhlíð.
Talsverðar umræður urðu um
VALSBLAÐIÐ 59