Valsblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 61

Valsblaðið - 01.05.1986, Qupperneq 61
Eftirtaldir aðilar óska Val til hamingju með 75 ára afmælið essemm SVEINN MAGNÚSSON AUGLÝSINGAR - markaðsrAðgjöf Niðursuðuverksmiðjan Ora hf. Vesturvör 12 Kóp. Eðvald Hinriksson 09 f jölsk. MiStún 8 s: 23256 Glóbus hf. Lágmúla 5 s: 681555 J.S. Helgason hf. Draghálsi 4 s: 37450 Hampiðjan Stakkholti 4 s: 28100 Verslunin Valgarður Leirubakka 36 s: 71290 stækkaði, fleiri og fleiri keppnisflokkar komu til sögunnar, bæði kvennaflokkar, unglingaflokkar; badminton og körfu- knattleikur sáu dagsins ljós. Þetta kallaði á fleiri velli, nýrra og fullkomnara íþróttahús og betri félagslega aðstöðu. Eftir um 12 ára hlé, eða á árinu 1970 hófst svo undirbúningur undir frekari vallarframkvæmdir. Sótt var um leyfi til borgaryfirvalda um stækkun á Hlíðar- endasvæðinu til suðurs með það í huga að byggja völl, sem yrði 120x90 m2 að stærð, með áhorfendastæðum, bflastæð- um sunnan vallarins og takmarkið var heimavöllur Vals. Um þetta leyti kom fram af hálfu borgaryfirvalda töluverðar skipulagsbreytingar á vegakerfinu kring- um Hlíðarenda. Miklabrautin átti að færast nær og verða að hraðbraut. Gera átti undirgang undir Miklubrautina sem yrði aðkomuleið að Hlíðarenda og Sól- eyjargatan að fara beint suður í Fossvog. Þetta varð til þess að framkvæmdir drógust, þar sem nauðsynleg leyfi fengust ekki. Áfram var unnið að málinu og árið 1972 voru öll nauðsynleg leyfi fengin, teikningar tilbúnar og útboð gerð. Framan af gengu framkvæmdir frekar hægt því vallarstæðið var erfitt í vinnslu. Töluverðar sprengingar að sunnanverðu og aka varð miklu magni af uppfyllingar- efni að vestanverðu, sem þurfti svo að þjappast saman til að undirstaða vallarins væri trygg. Árið 1977 var völlurinn tekinn í notkun, með steyptum áhorfendastæð- um fyrir u.þ.b. 1500 manns og girðingu umhverfis svæðið. Síðan var unnið að frekari frágangi vallarins og undanfarin ár hefur hann verið heimavöllur Vals í knatt- spyrnu og þar með varð Valur fyrst félaga til að eignast sinn eigin heimavöll. Síðan hafa framkvæmdir haldið áfram jafnt og þétt. Upphaflega malarvellinum var breytt vegna staðsetningar annars íþróttahúss. Framkvæmdir við húsið hófust 1981 og er það nú um það bil fokhelt. Félagsheimilið hefur verið end- urbyggt. Unnið er við íbúðarhúsið og kemur það til með að verða skrifstofa félagsins og fundaraðstaða. Hafin er endurnýjun gamla grasvallarins sem var orðinn úr sér genginn. Unnið er að hækkun svæðisins og öðrum undirbún- ingi fyrir frekari vallargerð. Einnig hafa farið fram ýmsar endurbætur á núverandi íþróttahúsi og verður haldið áfram með þær nú á næstunni. Lokaorð Hér að framan hefur í stuttu máli verið getið helstu þátta í framkvæmdasögu fé- lagsins að Hlíðarenda. Eins og fram kemur hefur sú stefna ávallt verið ríkjandi að Valsmenn væm sjálfum sér nógir, bæði íþróttalega og félagslega. Sú þróun hefur gengið í bylgjum eins og gengur og gerist, einkum þegar haft er í huga, að hér er um áhugamannastarf að ræða og tak- markaðir fjármunir fyrir hendi hverju sinni. Brautryðjendurnir vörðuðu veginn, síðan kaupin á Hlíðarenda undir forystu Olafs h'eitins Sigurðssonar, framkvæmda- mennirnir Ulfar Þórðarson, Jóhannes Bergsteinsson, Andreas Bergmann, Sig- urður Olafsson, sem voru í fararbroddi í framkvæmdum um 12 ára skeið, síðar sá sem þetta ritar og nú siðustu árin for- maður félagsins, Pétur Sveinbjarnarson. Enda þótt framangreindir aðilar séu sér- staklega tilnefndir, fer ekki á milli mála að ótalinn fjöldi félagsmanna hefur lagt hönd á plóginn með sjálfboðaliðsstarfi, bæði við framkvæmdirnar sjálfar, við fjáraflanir og önnur störf viðvíkjandi framkvæmd um. Nú eru nýir og áhugasamir félags- menn teknir við og munu halda áfram framkvæmdum og stuðla að því að í fram- tíðinni verði Hlíðarendi eins og hingað til annað heimili Valsmanna bæði íþrótta- lega og félagslega og sem útivistarsvæði. Góðir Valsmenn, farsælt afmælisár. Þórður Þorkelsson. VALSBLAÐIÐ 61
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.