Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1940, Side 62
62 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Árnadóttur Helgasonar (sjá þátt Á. H. Helgasonar).
Settust þau að á landeign Halldórs og hafa búið þar
síðan. Þau eiga þrjú börn. Halldór hefir verið
afkasta maður mikill.
Halldór tók mikinn þátt í knattleikaflokk bygð-
arinnar og þótti þá snar í snúningum. Þau hjón
tóku mikinn þátt í félagslífi bygðarinnar, og eru vel
kynt að verðugu.
Athugasemd: Sigfús Anderson mun hafa leigt
landeign Halldórs, er Halldór fór til Chicago. Var
Sigfús bar stutt, en leigði síðar lönd á öðrum
stöðum hér í bygð. Fluttist héðan til Morden og
mun nú vera búsettur skamt frá Lundar, Man.,
(skortir frekari upplýsingar).
Valdimar Jóhannes Ólafsson (Árnason)
Valdimar kom hingað í bygð með foreldrum
sínum árið 1899 (sjá þátt Ól. Árnasonar), og ólst
upp hjá þeim þar til hann giftist. Kona Valdimars
er Jóhanna Sigurbjörg Pálsdóttir ísakssonar (sjá
þátt Páls ísakssonar) og settust þau að á S.V.þi S.
10, 1-6. Fékk Valdimar 80 ékrur hjá föður sínum,
en keypti aðrar 80 ekrur af Halldóri bróður sínum.
(Faðir þeirra hafði áður gefið þeim bræðrum sitt
hálft landið hvorum). Þar bygði Valdimar vandað
hús. Er hann búhneigður maður.
Valdimar tók mikinn þátt í knattleikjum bygð-
arinnar og munaði um hann þar, sem víðar. Eru
þau hjón bæði, félagslynd og vel kynt.
Fyrir nokkrum árum seldi Valdimar landið
Þorst. J. Gíslason, en hefir það á leigu, ásamt öðrum
80 ekrum er Þorsteinn á af sömu fermílunni.
Þau hjón hafa eignast 10 börn, þrjú dóu í æsku
en sjö eru á lífi, efnileg og vel gefin.