Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1940, Side 69
ALMANAK 1940
69
f 'ru svo leikar, að Julius Krushel bað um póstaf-
greiðsluna og fékk hana 1901, og nefndist pósthúsið
Brown, og hafði hann afgreiðsluna á hendi þar til
hann seldi búð sína Jósteini Halldórssyni 1907 og
flutti burtu. Hjá Jósteini var póstafgreiðslan rúmt
ár. Tók þá við henni Gunnl. Árnason þar til haustið
1910, að T. J. Gíslason tók við henni. Hafði hann
haustið áður keypt vörurnar af Jósteini Halldórssyni
og sett á stofn verzlun á S.AT/4 S. 22, 1-6. Hafði
hann síðan póstafgreiðsluna á hendi ásamt verzlan-
inni um 17 ára bil, eða þar til haustið 1927, að hann
seldi búð sína F. P. Tasker, er þá tók við póstaf-
greiðslunni líka og hefir haft hana síðan.
Morden er ennþá aðal verzlunarstaðurinn, síðan
bifreiðarnar komu til sögunnar og brautirnar bötn-
uðu. Eru þar margar kornhlöður og hveitimylla,
rjómabú og banki og allskonar verzlanir. Dómshús
er þar fyrir suður Manitoba ásamt fangahúsi, fer
þar fram dómþing haust og vor. f bænum heldur
Stanlgy sveit fundi sína. Er það fallegur bær, og
stendur undir neðstu kömbum Pembina-fjallanna,
reifður plöntuðum skógarreitum. Er tilrauna-
stöð akuryrkju starfsemi landsins rétt austan við
bæinn.
Félagsmál fslendinga
Félagslíf fslendinga hér í bygð, hefir jafnan
verið gott, sýna það bezt hin mörgu félög er hér hafa
risið upp. Sum urðu að vísu ekki langlíf, en önnur
þroskuðust þeim mun betur.
Fyrst má nefna lestrarfélagið “Fróði” er stofn-
að var til strax fyrsta haustið, þ. e. 1899. Forkólfar
þess fyrirtækis voru Árni Sigurðsson og synir hans,
Sveinn, Þórður og Gunnlaugur, T. J. Gíslason, J. S.
Gillis, Tómas Jóhannesson, Árni Tómasson og fleiri.
Fyrsti bókavörður var Árni Sigurðsson og var það
jafnan meðan hann dvaldi hér. Næsti bókavörður